157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[20:39]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég byrja á að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir andsvarið. Þessi spurning kemur kannski ekki á óvart úr hans ranni. Ég hef svarað því áður í þingsal að bandarísk stjórnsýsla er marglaga. Þetta eru mörg lög stjórnsýslunnar og ég hef ekki orðið var við annað í samtölum við bandaríska öldungadeildarþingmenn á undanförnum misserum en að þeirra fókus sé á NATO og ég heyri ekki annað en að þannig sé það almennt í stóru myndinni þegar bandarísk stjórnvöld eru í umræðunni t.d. við Evrópu. Hins vegar er forsetinn að tala með allt öðrum hætti og að mörgu leyti hefur verið svolítið óheppilegt ýmislegt sem sagt hefur verið en það er ákveðinn tilgangur sem er sá að um raunverulega mjög langt skeið, a.m.k. var Obama byrjaður að tala um þetta og síðan í framhaldinu þeir forsetar sem hafa verið síðan þá að Evrópa þyrfti að taka meiri þátt í að fjármagna varnir NATO og þá er náttúrlega verið að beina þessu fyrst og fremst að Evrópuríkjunum eins og við þekkjum. Það má segja að þessi hreyfing hafi orðið töluvert mikil frá því á Wales-fundinum 2014 þar sem þrjú ríki voru búin að ná þessu 2% viðmiði. Á síðasta ári frekar en þarsíðasta þá voru þetta kannski fimm, sex ríki sem voru ekki búin að ná þessum 2%. Síðan sjáum við Haag-samkomulagið frá því í fyrra þannig að Bandaríkjaforseti er að þessu leyti raunverulega að ná svolítið fram því sem forverar hans hafa verið að leggja áherslu á. En auðvitað er svolítið hastarlega farið í þetta, það verður að viðurkennast.