utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég er sammála þessu uppleggi og hún reyndar talaði um það hér áður. Það sem Trump náði í gegn var það sem aðrir Bandaríkjaforsetar höfðu reynt en ekki náð fram. Það er einmitt að Evrópa yrði sjálfbærari með eigin varnir. Þannig er það bara, það er bara staðreynd. En ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er svolítið hastarlega gert og þetta er auðvitað ekki bara Bandaríkjaforseti. Þetta hefur líka komið fram hjá Peter Hegseth og DJ Vance, ég ætla að leyfa mér að segja þetta svolítið svona herskáa tal í garð bandamanna til áratuga. Við flest í Evrópu erum að vonast til þess þar sem einmitt stjórnkerfið þarna er marglaga að viðhorfin á toppnum muni breytast með tíð og tíma. En þetta er samt svolítið til þess fallið, vil ég meina a.m.k. til skemmri tíma, að veikja bandalagið, veikja samstöðu innan Atlantshafsbandalagsins og það er auðvitað ekki gott fyrir litla þjóð eins og Ísland sem á svo mikið undir í þessu öllu.
Ég er síðan svolítið hugsi yfir því að þegar Bandaríkjamenn kynna nýja varnar- og öryggisstefnu hjá sér þá fari smá hræðsluótti um ríki Evrópu en í Rússlandi, í Kreml, er talað um að þetta samræmist að einhverju leyti sjónarmiðum Rússa og sýn á heimskerfið allt saman. Þetta finnst mér auðvitað svolítið óþægilegt allt saman. Hv. þingmaður nefndi að við ættum auðvitað að standa með ríkjum sem virða alþjóðalög, sem virða mannréttindi og virða lýðræði. Það erum við öll sammála um og hingað til höfum við getað reitt okkur á að Bandaríkjamenn séu nákvæmlega þar.
En spurningin mín er: Getum við gengið út frá því í dag og sagt með vissu að í Bandaríkjunum, sem við viljum auðvitað tengjast miklum vinaböndum og verður vonandi áfram, sé borin mikil og einskær virðing fyrir lýðræði, mannréttindum og alþjóðalögum (Forseti hringir.) eins og nú háttar til í efsta laginu í stjórnkerfinu í Bandaríkjunum?