utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir seinna andsvarið. Ég lofaði að koma aðeins inn á þessi samskipti mín við Lisu Murkowski í seinna andsvarinu mínu og það tengist því sem hv. þingmaður var að koma aðeins inn á núna líka. Við finnum það alveg að það er gríðarleg spenna innan Bandaríkjanna en Lisa Murkowski er á allt öðrum stað og í rauninni með allt aðra afstöðu en forseti Bandaríkjanna. Við finnum alveg hvernig þau tala vegna þess að ég hitti þarna líka annan öldungadeildarþingmann, Peter Welch, sem var líka á öndverðum meiði en hann er reyndar ekki repúblikani. Við finnum alveg fyrir því og það er það sem maður hefur áhyggjur af líka að það er bara einfaldlega spenna innan Bandaríkjanna.
Það er verið að reyna að fá mig til að svara varðandi Evrópusambandið og hv. þingmaður kom reyndar ágætlega inn á það í sinni ræðu hér fyrr í kvöld að þetta snýst ekki bara um norðurslóðir. Þetta snýst líka um varnir Evrópu þegar kemur að Úkraínu og línunni gagnvart Rússlandi annars staðar. Ég held að við þurfum að horfa á þetta dálítið glóbalt. Vissulega skipta samskipti okkar við Kanada og Bandaríkin gríðarlega miklu máli og ég styð það heils hugar, svo sannarlega. En ég held að við þurfum líka að horfa miklu víðar og við eigum bandamenn í Evrópu sem eru okkur gríðarlega mikilvægir. Það mun koma í ljós hvernig þjóðin tekur ákvörðun um framhaldið á því en ég held að við eigum bara mjög góðan stuðning innan Evrópu þegar kemur að varnar- og öryggismálum. Við höfum það í dag þannig að við eigum að nýta okkur það áfram eins og við höfum gert og munum gera það áfram í framtíðinni.