157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[21:05]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Ég var mjög ánægður með margt sem þar kom fram og var ánægður með að hv. þingmaður skyldi taka málið upp. Þetta er eitt af þessum málum sem við þurfum að ræða en út af ESB-leiðangri ríkisstjórnarinnar þá fer eðlilega mestur tíminn í varnir þar. Ég er ánægður með að hv. þingmaður vísaði til frumbyggja. Við eigum margt sameiginlegt með frumbyggjum og það er lykilatriði að við styðjum þá, að þeir séu þátttakendur í því sem er svo sannarlega þeirra. Það fara að vísu ýmsar hugleiðingar í gang þegar við ræðum þessa hluti. Ég var formaður í Norðurskautsráðinu þar sem voru nú ansi miklar áskoranir á þeim tíma og ég lagði mikla áherslu á, og við Sjálfstæðismenn á þessum tíma, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir stýrði nýrri norðurslóðastefnu og það var samþykkt, að Akureyri væri höfuðstöðvar norðurslóða. Ég tek undir orð hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur varðandi tækifæri þar og ég veit að hv. þingmaður er mér sammála. Sömuleiðis fórum við og gerðum úttekt og skýrslu um efnahagsleg tækifæri okkar á norðurslóðum, Grænlands-skýrslan og Færeyja-skýrslan er nokkuð sem hefur elst mjög vel. Ég hef hins vegar varað við þeirri hugmynd að Evrópusambandið muni verða einhver stór þátttakandi þegar kemur að öryggis- og varnarmálum þar. Það er engin þjóð innan Evrópusambandsins, fyrir utan Finna og Svía, sem hefur þar beinna hagsmuna að gæta.

Ég vildi hins vegar spyrja hv. þingmann, af því að hann kom ekki inn á það, út í alþjóðlegu björgunarmiðstöðina. Það verður að koma upp slíku fyrirkomulagi og eini staðurinn er í rauninni Norðaustur-Ísland. Mér finnst að við þurfum að líta til þess og við reyndum það á sínum tíma. Ég vil annars vegar spyrja hann út í hver staðan er á því máli og síðan um þær ógnanir sem stafa af hlýnun jarðar. Menn hafa haft áhyggjur af hafstraumum og öðru slíku sem gæti haft bein áhrif á okkur, ef hv. þingmaður myndi kannski koma inn á þetta tvennt.