157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[21:07]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni kærlega fyrir fyrirspurnirnar. Mig langar að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir það framlag sem hann, sem fyrrverandi utanríkisráðherra, lagði til uppbyggingar norðurslóðanetsins og annarrar uppbyggingar á Akureyri. Hann á skilið þakklæti fyrir það, að sjálfsögðu. Það er alveg gríðarlega mikilvæg uppbygging sem á sér stað þar og ég tek heils hugar undir það að þar eru auðvitað mun meiri tækifæri og við eigum ekki að vera feimin við það að tala um Akureyri sem miðstöð norðurslóða á Íslandi og þótt víðar væri leitað. Ég er mjög stoltur af því framlagi, að sjálfsögðu, sem ég lagði sjálfur til í þeirri vinnu en við áttum ágætissamstarf á þeim tíma.

Varðandi frumbyggjana og í rauninni allt sem snýr að þeim þá því miður upplifi ég það núna, verandi kominn aftur inn í málefni norðurslóða eftir smábið, að það hefur orðið bakslag í þessari vinnu. Það heyri ég sérstaklega hjá Norðmönnum og ekki síst Svíum, hvernig menn nálgast samskipti við frumbyggja. Það var t.d. tekist á um það núna í Alaska varðandi ályktunina frá fundinum hvernig ætti að orða ályktunina hvað snertir frumbyggjana. Ég tek því heils hugar undir með hv. þingmanni að við verðum að vera vakandi fyrir því og þetta er svolítið, ég veit ekki hvernig ég á að orða það kurteislega, kaldhæðið að við sem teljumst ekki frumbyggjar á svæðinu skulum vera helstu baráttumenn fyrir því samt sem áður. En okkur tókst að leiða þetta til lykta og það kemur svo sannarlega fram í ályktuninni.

Alþjóðlega björgunarmiðstöðin — ég er bara hissa á því að hv. þingmaður hafi ekki klárað þetta á sínum tíma og ég er bara ósáttur við að hann skuli ekki hafa gert það. En ég styð hann heils hugar í því ef hann styður mig í því að koma þessari alþjóðlegu björgunarmiðstöð upp norður á Akureyri. Við finnum örugglega staðsetningu fyrir hana einhvers staðar fyrir norðan.