utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það gerir enginn neitt einn. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hlý orð en við áttum ekkert ágætissamstarf, við áttum bara prýðissamstarf. Enda skilur hv. þingmaður og hafði þá framsýni að átta sig á tækifærum sem í þessu felast, bæði fyrir Akureyri en ekki síst auðvitað fyrir landið allt. Ég held hins vegar að alþjóðlega björgunarmiðstöðin — eini staðurinn fyrir hana sem er raunhæfur er á Langanesi. Þar er aðstaða fyrir höfn sem er nauðsynleg til þess að vera með björgunarskip. Ef slæmt umhverfisslys yrði, sem vonandi verður aldrei, fyrir norðan Ísland tæki það tvo sólarhringa fyrir björgunarskip að koma frá Noregi. Ég gerði það sem ég gat til að ýta því máli áfram og ég tók það upp alls staðar þar sem ég gat á alþjóðavettvangi. Við gætum aldrei gert þetta ein. En það er líka möguleiki fyrir flugvöll þar. Þegar NATO var á sínum tíma að hugsa um annan flugvöll á Íslandi þá lá þetta svæði undir. (Forseti hringir.) Þarna eru mikil tækifæri en við gerum þetta ekki ein. Ég var nú meira að hugsa um hvort einhver umræða hefði verið um þetta á þeim vettvangi sem hv. þingmaður er að starfa á.