utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Hv. þingmaður er nýkominn frá Fairbanks af þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál. Sá sem hér stendur var einmitt í Fairbanks fyrir einu og hálfu ári með varnarmálanefnd NATO-þingsins. Þegar við ræðum um norðurslóðir og til að fólk átti sig á hvernig svæðið er, að frá Alaska til Finnlands, þá er ég að benda á að með því að fara yfir norðurpólinn og þarna á milli þá flýgurðu þarna á milli á átta, níu tímum. Það er áhugavert að fljúga frá Keflavík til Anchorage í Alaska. Það tekur styttri tíma heldur en að fljúga til Seattle. Þetta eru norðurslóðirnar og það er fróðlegt að pæla í því að í Alaska hafa Bandaríkjamenn mjög öflugar herstöðvar, bæði út af Kyrrahafinu og síðan hvað það eru stuttar leiðir að fara t.d. til Evrópu eða um norðurslóðirnar. Þetta er því svona enn ein víddin í hvað þetta hernaðarlega mikilvægi er orðið mikið og kemur svo ótrúlega víða fram, (Forseti hringir.) þannig að það væri áhugavert að heyra hjá hv. þingmanni hvernig þessi umræða fer fram út frá varnar- og öryggismálum á þingmannaráðstefnunni.