utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég hef bara eina mínútu til að svara þessu og ég heyri að við getum rætt mjög mikið um þessi mál á norðurslóðum sem eru okkur gríðarlega mikilvæg. Í samtalinu sem við áttum í Fairbanks, á fundum þingmannanefndarinnar sitja m.a. fulltrúar Evrópusambandsins og þeir tjáðu sig algerlega um að það skiptir Evrópu gríðarlega miklu máli að vera með í því að tryggja þetta sem lágspennusvæði. Ég þekki það líka af eigin reynslu að þegar ég var að taka þessi samtöl um björgunarmál á norðurslóðum á sínum tíma voru Frakkar og Þjóðverjar einmitt mjög áhugasamir um þessi mál og við eigum í mjög góðum samskiptum við þær þjóðir og líka Hollendinga þegar kemur að því að tryggja okkar öryggismál. Ég fann fyrir því m.a. í Fairbanks að Evrópuþjóðir, hvort sem þær eru innan Evrópusambandsins eða ekki, horfa til okkar svæðis og horfa að sjálfsögðu til mikilvægis samstarfsins við Ísland.