utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég vil leggja nokkur orð í belg í þessari umræðu um skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál 2025 og þakka fyrir umræðurnar sem hér hafa verið í dag. Þær hafa verið góðar, finnst mér. Það hefur víða verið komið við eins og gefur að skilja þegar rætt er um utanríkismál. Menn hefur kannski mest borið niður í varnar- og öryggismálum og þá með hliðsjón af NATO og Úkraínu og auðvitað hefur umræðan líka farið inn í Evrópumálin í svolítið víðu samhengi. Ég held það sé ekkert ofsagt í því, eins og kemur fram í þessari skýrslu og við horfum upp á á hverjum einasta degi, að heimsmyndin sé að breytast ansi hratt. Hún hefur gert það svo um munar. Þegar Rússar réðust inn í Úkraínu breyttist margt. Það hefur margt breyst með því hvernig Bandaríkjamenn hafa metið sína stöðu í samfélagi þjóðanna, á nýjan hátt með nýjum stjórnvöldum. Það hefur verið mikill þrýstingur af hálfu Bandaríkjamanna á að beina því til ríkja Evrópu að vera sjálfbær um sínar varnir. Það er eitt af því sem við Íslendingar erum að fóta okkur í. Ég held að við séum flest sammála um það í þessum sal að vera okkar í NATO, Atlantshafsbandalaginu, og varnarsamningurinn við Bandaríkin skipti okkur gríðarlega miklu máli og séu hryggjarstykkið í okkar öryggis- og varnarmálum. Um það erum við, held ég, flest sammála. Við höfum reyndar verið með ríkisstjórn þar sem einn flokkurinn var nú, a.m.k. í orði kveðnu, ekki á því að Ísland ætti að vera í Atlantshafsbandalaginu en í þeirri ríkisstjórn var engu að síður ákveðinn friður um að sú væri samt sem áður staðan. Það er eitthvað sem við getum auðvitað tekið með okkur inn í þetta allt saman. En við höfum líka verið að móta okkar eigin varnar- og öryggisstefnu sem var mikið framfaraskref. Við erum líka núna að vinna í þeirri stöðu sem öll ríki Atlantshafsbandalagsins eru í og kannski ekki síst önnur ríki en Bandaríkin. Það eru allir að stórefla framlög til varnar- og öryggismála og það er verið að tala um að hefðbundin hernaðar- og varnarútgjöld séu þá 3,5% af vergri landsframleiðslu og svo fari 1,5% í útgjöld sem tengjast því. Það er auðvitað sá hluti sem við Íslendingar erum að reyna að uppfylla út frá öllum viðmiðum.
Mér hefur fundist, og ég nefndi það hér fyrr í umræðunni, við stíga svolítið varlega til jarðar, og kannski eðlilega, þegar við erum að tala um það hvernig Bandaríkjamenn eru farnir að beita sér með öðrum hætti en þeir hafa gert í gegnum tíðina. Það er auðvitað þannig að við höfum verið að taka það til okkar, rétt eins og önnur Evrópuríki, að Evrópa verði að vera sjálfbær um sínar varnir. Þessu verður ekki áratugum saman útvistað til Bandaríkjanna og mér hefur reyndar fundist að Evrópuríkin hafi verið að taka mjög vel við sér í því. Við sjáum auðvitað að þetta hefur haft mikil áhrif á ríkin hér í kringum okkur. Við sjáum að Svíar og Finnar eru komnir inn í Atlantshafsbandalagið. Við sjáum að Danir fóru í þjóðaratkvæðagreiðslu um það að fara inn í varnarhluta Evrópusambandsins sem þeir voru undanþegnir áður. Og hér á Íslandi erum við síðan að reyna að ræða þessa stöðu í víðu samhengi.
Það breyttist mikið þegar Rússar réðust inn í Úkraínu og það kemur mjög vel fram í þessari skýrslu að við Íslendingar höfum kappkostað að reyna að vera ekki eftirbátar annarra þjóða í því að aðstoða Úkraínu í sínum vörnum. Það er reyndar þannig, ætla ég að leyfa mér að segja, að við erum eftirbátar sumra annarra ríkja þegar kemur að fjárframlögum til Úkraínu eða til stuðnings Úkraínu. Það kemur fram í skýrslunni að frá 2022 og til desember 2025 þá var stuðningurinn við Úkraínu rúmlega 15 milljarðar, 15,3 milljarðar. 8,9 milljarðar fara beint í varnartengdan stuðning og um 6,5 milljarðar í mannúðar- og efnahagsstuðning. Þarna finnst mér í lagi að halda því til haga að þegar umræðan hér á Íslandi hverfist um stuðning okkar við Úkraínu, og við erum mögulega að ræða um að taka þátt í verkefnum sem m.a. kalla á kaup á hergögnum og öðru slíku, þá kemur það oft upp að við séum friðelskandi þjóð, að við eigum ekki að vera að kaupa vopn, að við eigum meira að vera í því að sinna svona efnahagslegum stuðningi og að styrkja innviðauppbyggingu og auðvitað að taka á móti fólki frá Úkraínu og leggja okkar af mörkum þannig. Mér finnst hins vegar svolítið mikilvægt að við högum okkar stuðningi við Úkraínu rétt eins og Úkraína vill sjálf að sé gert. Þegar verið er að ráðast á ríki og drepa borgara þess þá er ekkert óeðlilegt að ríkið kalli eftir beinum hernaðar- eða varnarstuðningi eða hvað við viljum kalla það. Mér finnst við Íslendingar ekkert vera of góðir til að gera það með þeim formerkjum sem Úkraínubúar vilja sjálfir, þótt ég skilji mjög vel að við viljum stilla okkur upp sem friðelskandi þjóð og að við eigum einhvern veginn að standa utan við þetta allt.
Málið í þessu er að fólkið í Úkraínu er líka friðelskandi fólk. Fólk í Póllandi og í Eystrasaltsríkjunum er friðelskandi fólk. Það er engin sjálfkrafa krafa meðal almennings í þessum löndum að fara með hernaði gegn öðrum þjóðum. En við Íslendingar tölum gjarnan þannig. En þegar við erum að hugsa um þennan stuðning til Úkraínu þurfum við að hugsa það þannig að við séum auðvitað að verja ákveðin gildi sem við viljum öll standa saman um að verja. Það finnst mér skipta mjög miklu máli. Ég hef reyndar aðeins hreyft því í minni ræðu, af því að þessi gildi eru m.a. mannréttindi, lýðræði, virðing fyrir alþjóðalögum og annað í þeim dúr, að við þurfum að geta tekið það samtal opinskátt hvort öllum bandamönnum okkar í NATO sé t.d. mjög mikið í mun að verja nákvæmlega þessi sömu gildi. Þetta er auðvitað eitt af því sem mér finnst að við þurfum að hafa í huga þegar við erum að ræða um veru okkar í NATO og samstarf við aðrar þjóðir þar inni en svo líka þegar kemur að því að standa með Úkraínu sem er algjört grundvallaratriði fyrir okkur Íslendinga og íbúa álfunnar. Þetta er varðstaða gegn ásælni ríkis sem er mjög fjandsamlegt.
Við erum auðvitað líka í því, Íslendingar, að meta stöðu okkar í alþjóðasamfélaginu og ekki bara út frá varnar- og öryggismálum heldur líka efnahagslega. Mér finnst að við þurfum að flétta saman, ekki síst nú á seinni tímum, umræðu um efnahagslegt öryggi Íslands og Íslendinga og svo um þessi hefðbundnu varnar- og öryggismál. Ég hef margoft sagt það að fyrir einhverjum misserum fundust mér varnar- og öryggismál ekkert vera neitt sérstaklega þung á metum þannig lagað séð þegar rætt væri um mögulega aðild að Evrópusambandinu. En það hefur alveg gerbreyst. Það er veruleiki sem Danir tóku til sín þegar þeir fóru undir varnar- og öryggishluta Evrópusambandsins. Það er ekki ákvörðun sem er tekin í einhverju bríaríi. Það var þjóðaratkvæðagreiðsla og það er ákveðið hagsmunamat sem er á bak við það. Við Íslendingar getum því ekki talað eins og varnar- og öryggismál séu ekki partur af þessari jöfnu þegar við tölum um Evrópu. Fyrir mér er það hins vegar þannig að þetta efnahagslega öryggi, og þá er ég bara að tala um efnahagslegt öryggi þjóðarbúsins okkar, efnahagslegt öryggi fjölskyldna, einstaklinga, heimilanna okkar, efnahagslegt öryggi fyrirtækja, ekki síst lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem eru auðvitað burðarstoðin í atvinnulífi okkar Íslendinga — og þar held ég að það geti skipt verulegu máli að sækjast eftir aðild að Evrópusambandinu og bera aðildarsamning undir þjóðina ef þjóðin ákveður að fara þann veg.
Mér finnst það skipta gríðarlega miklu máli upp á efnahagslega öryggið að við getum tengst inn í stærra myntsamstarf. Ég átta mig alveg á því að um þetta eru skiptar skoðanir í þessum sal. Ég virði það bara. En ég get ekki séð með neinum góðum rökum hvað varðar efnahagslegt öryggi Íslendinga, verandi með pínulítinn gjaldmiðil í risastóru heimshagkerfi sem sveiflast og er rokgjarnt, eins og við erum að upplifa á þessum tímum, að það sé neitt annað en kostur að tilheyra stærra myntsamstarfi. Það finnast mér veigamestu rökin þegar við erum að staðsetja okkur í utanríkis- og alþjóðamálum.
Það er stundum tekist á um það hvort þessi þjóðaratkvæðagreiðsla sem boðuð (Forseti hringir.) hefur verið eða hrein aðild að Evrópusambandinu — hvort þetta sé meiri háttar utanríkismál eða ekki. Ég held við séum öll sammála um að þetta er meiri háttar utanríkismál en við megum heldur ekki gleyma því að þetta er líka meiri háttar innanríkismál og það er eitthvað sem við þurfum þá að taka vel utan um og fara vel yfir.