157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[21:32]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og ég var sammála ýmsu sem þar kom fram. Hv. þingmaður talaði um mál sem eru gríðarlega mikil undirstöðumál, sem eru varnarmálin, en það er nú svolítið þannig hjá hv. þingmanni að öll vötn leiða alltaf til Evrópusambandsins. Ég ætla að spyrja hv. þingmann að tvennu: Nú er ríkisstjórnin búin að lýsa því yfir að það eigi að ná 1,5% í varnarmál, sem eru 77 milljarðar, og við höfum verið að spyrjast mikið fyrir í hv. fjárlaganefnd um hvernig áætlunum líður hvað þetta varðar. Við fengum þær upplýsingar að við værum að setja 27 milljarða núna samkvæmt einhverjum skilgreiningum sem er náttúrlega gríðarleg aukning, um 20 milljarða aukning frá því sem var í fyrra. Þekkir hv. þingmaður það eitthvað? Síðan er líka hitt varðandi, af því að ég er að reyna að skilja hv. þingmenn sem styðja aðild okkar að Evrópusambandinu — hvað eru þeir að tala um? Nú er það þannig að ástæðan fyrir því að við erum með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin er ekki sú að Bandaríkjamönnum þyki svo einstaklega vænt um Íslendinga eða af því að Leifur Eiríksson kom fyrstur til Ameríku. Þetta er vegna þess að þau lönd sem hafa sömu strategísku hagsmuni og við eru Bandaríkin, Kanada, Bretland og við getum líka nefnt Noreg. Er hv. þingmaður að gera því skóna að ESB muni með einhverjum hætti fara að verja okkur? Þau geta ekki varið sig sjálf. Hvað er það sem hv. þingmaður er að vísa til? Mér fannst hann ekki alveg tala skýrt hvað þetta varðar.