157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[21:37]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég skil hann þannig að hann viti jafn lítið og við hin um áætlanir ríkisstjórnarinnar varðandi varnarmálin. Við erum búin að vera með fyrirspurn til utanríkisráðuneytisins síðan um miðjan nóvember um þessi mál og það hafa ekki enn þá komið svör, en við munum halda áfram. Þeir sem hófu að verja Úkraínu þegar Rússar réðust inn, og aðrir fylgdu á eftir, voru Bretar, og Bandaríkjamenn komu í kjölfarið. Evrópusambandsríkin komu nú kannski síðast en það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að þau bera þyngri hlutann núna. En á endanum, eins og hv. þingmaður vísaði til, þá snýst þetta um hagsmunamat. Hv. þingmaður var svolítið óljós þegar hann talaði um að við gætum gripið til einhvers samstarfs við Evrópuríkin. Hin vestrænu ríki sem geta varið okkur, hafa burði til þess, eru Bandaríkin og kannski Bretland en þau eiga samt sem áður fullt í fangi með að efla sinn herafla en þeir hafa hagsmuni af því. Af því að hv. þingmaður vísaði í hagsmuni: Þó svo að Þjóðverjar ætli t.d. að stórefla sinn hernað þá erum við ekki á áhrifasvæði þeirra eða þeim svæðum sem snúa að þeim þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. Það eru önnur svæði, þar sem þeir eiga sín landamæri og þeir munu — já, það eru aðrir hagsmunir þar. Svo sannarlega Frakkar líka ef við tökum þessi stóru ríki. Hin ríkin verða nú aldrei aflögufær til að verja okkur gegn ógnum frá þeim ríkjum sem við gætum mögulega þurft að hafa áhyggjur af. Ég vona að hv. þingmaður sé ekki (Forseti hringir.) að leggja það út þannig að við séum hér með einhvern valkost í Evrópusambandinu þegar kemur að okkar vörnum því að það er mjög langur vegur frá því að það sé raunhæft.