utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Hér var talað um áhrifasvæði og hagsmunamat. Núna hafa t.d. Bandaríkjamenn talað um Grænland sem part af sínu áhrifasvæði, að þeir þurfi að verja sína varnar- og öryggishagsmuni helst með því að taka yfir Grænland. Bara eins og ég er alltaf að segja: Það nákvæmlega sama á við um Ísland. Þess vegna skipta samskiptin við Bandaríkin okkur auðvitað gríðarlega miklu máli. Eru ríki Evrópu í dag í stakk búin til að taka fullkomlega við hlutverki Evrópu? Það má alveg færa rök fyrir því að svo sé ekki en ég er þess algerlega fullviss að það er ekki langt í að það verði þannig. Þegar við erum að skilgreina okkar öryggis- og varnarhagsmuni þá getum við ekki leyft okkur að hugsa bara einhver eitt, tvö eða fjögur ár fram í tímann. Við hljótum líka að þurfa að hugsa kannski tíu ár fram í tímann. Þessi uppbygging í vörnum Evrópu er á fleygiferð ofur einfaldlega vegna þess að menn hafa séð að veður eru válynd í Bandaríkjunum og eins og kom hér fram í fyrri skoðanaskiptum í salnum þá er það auðvitað þannig að við, eins og önnur Evrópuríki, höfum verið að horfa á það hvert Bandaríkjamenn hafa verið að færa sínar áherslur. Það gerir það auðvitað að verkum að við þurfum að skoða okkar allt upp á nýtt. Þéttara samstarf með Evrópuríkjunum er bara hluti af því án þess að við séum með því að varpa fyrir róða góðum samskiptum við Bandaríkin eða veru okkar í Atlantshafsbandalaginu eða eitthvað í þeim dúrnum.
Það sem ég er bara að segja er að þessi varnar- og öryggismál í víðu samhengi; Evrópusambandið er stærri partur af jöfnunni núna heldur en það var áður. Okkur getur greint á um þetta, það er bara eðlilegasti hlutur í heimi að okkur greini á um þetta. En það sem Bandaríkjaforseti hefur einmitt verið að gera er að hann hefur verið að biðla til Evrópuríkja um að vera sjálfbærari í eigin vörnum. Það er veruleikinn sem álfan er í. (Forseti hringir.) Við getum heldur ekki gert lítið úr því að Evrópusambandið er mjög framarlega þegar kemur að öllum viðbúnaði gegn fjölþáttaógnum. (Forseti hringir.) Það er eitthvað sem gæti hentað okkur Íslendingum líka mjög vel. En auðvitað eru skiptar skoðanir um þetta og ég skil það og virði.