utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir þetta. Já, ég hef talað talsvert mikið um Evrópumálin og minn flokkur hefur talað svolítið mikið fyrir þessu. Svo ég nefni þetta nú bara enn eina ferðina: Fyrir okkur er þetta leið að ákveðnu marki. Þetta er leið að stöðugra hagkerfi. Þetta er leið að efnahagslegu öryggi heimila, fyrirtækja og landsins alls. Þetta er leið til þess að lækka svimandi háan vaxtakostnað íslenska ríkisins. Þetta er leið til þess að fyrirtæki geti fjármagnað sig með skaplegri hætti. Þetta er leið til þess að fjölskyldur geti keypt sér þak yfir höfuðið án þess að vaxtagreiðslurnar stökkbreytist eftir því hvernig efnahagsástandið er hverju sinni. Við erum auðvitað að leggja upp með það að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um að fara í viðræður við Evrópusambandið. Evrópusambandið hefur verið mjög skýrt í því, stækkunarstjórinn, sjávarútvegsstjórinn og fleiri ráðamenn Evrópusambandsins, að það verði tekið mjög mikið tillit til sérstakra aðstæðna Íslands í samningaviðræðunum. Ég er algerlega sannfærður um það að samningsstaða okkar er mjög góð sem leiðir mig að þeirri niðurstöðu að það sé verulega ólíklegt annað en að ef þjóðin segir já við þeirri fyrri þá munum við greiða atkvæði aftur og þá um aðildarsamning. Ég hef hins vegar líka alltaf verið mjög skýr á því, eins og reyndar fleiri í mínum flokki, að það skiptir auðvitað öllu máli hvernig þessi samningur lítur út. Það skiptir auðvitað öllu máli hvernig atvinnuvegirnir okkar rammast inn í þetta og öll þessi umræða eins og við auðvitað þekkjum. Ég hef líka sagt að ef samningur eða viðræður leiða til einhvers sem er algjörlega óásættanlegt fyrir okkur þá auðvitað hefur enginn áhuga á því að líta við einhverju slíku. Mér finnst allt of lítið gert af því hér í þessum sal þegar við erum að tala um þetta að bera aðeins saman stöðu okkar þegar við sóttum um síðast og stöðunnar núna. Við vorum raunverulega á hnjánum, að koma út úr hruni, að biðla til Evrópuríkja um stuðning. Við vorum í vandræðum með að fá lán til að fjármagna hér efnahagskerfið og þar fram eftir götunum. (Forseti hringir.) Staðan núna er auðvitað allt önnur og það er styrkleiki fyrir okkur sem ég held að muni leiða okkur að hagfelldum samningi (Forseti hringir.) en við höfum alltaf talað fyrir þessu tvöfalda þjóðaratkvæði.