utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir og ég verð reyndar að segja að þegar kemur að þessum Evrópumálum þá er vilji og rými til misskilnings alveg hreint óheyrilega mikill. Kannski getum við líka tekið þetta til okkar sem tölum fyrir því að fara í viðræður og erum þeirrar skoðunar að þær viðræður myndu skila hagfelldum samningi fyrir Ísland. Við höfum alltaf talað fyrir þessu tvöfalda þjóðaratkvæði. Við höfum líka alltaf verið skýr um það að ef viðræðurnar skila lélegum samningi þá ætlum við ekki að greiða atkvæði með því. Þetta er leið að markmiði. Evrópusambandið er ekki markmið í sjálfu sér heldur leið að markmiði, eins og ég var að rekja hérna áðan; leið að efnahagslegum stöðugleika, leið að minna fákeppnisumhverfi. Eitt af því sem við höfum mikið verið að tala um er að gjaldmiðillinn okkar er svona ákveðin samkeppnishindrun. Mér finnst menn vera komnir út í svolitlar hundakúnstir þegar þeir eru farnir að leggja þetta upp með þeim hætti sem hv. þingmaður gerir. Ég átta mig hins vegar alveg á því að við erum mjög ósammála um Evrópusambandið og við erum mjög ósammála um aðferðafræðina í því hvernig eigi að fara í viðræðurnar og við erum ósammála um það sem við höldum að geti komið út úr þeim. Þetta verður auðvitað ekki leitt til lykta nema við förum í viðræðurnar og sjáum hvað kemur út úr því. Afurðina vil ég leggja undir dóm þjóðarinnar, það vil ég svo sannarlega gera.
Varðandi þann þátt að þetta snerist einhvern veginn um þingmenn Framsóknarflokksins, Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins eða þá þingmenn Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins eða þar fram eftir götunum. Ég vil hugsa um þessi mál — og þess vegna finnst mér reyndar tímasetningin á þjóðaratkvæðagreiðslunni svolítið góð — út frá víðari grunni heldur en bara þeim grunni sem við stjórnmálamenn erum að leggja á borðið fyrir þjóðina. Okkur hættir mjög til að festast í ákveðnum deilum, (Forseti hringir.) stundum um keisarans skegg eins og mér hefur fundist vera svolítið mikið um að undanförnu. En ég átta mig hins vegar á því að það verður að vera einhver sameiginlegur skilningur á forminu rétt eins og efninu. (Forseti hringir.) Það að þetta sé tekið úr höndum stjórnmálanna segi ég að sé gæfuspor, ég segi að það sé rétt leið.(Forseti hringir.) Hv. þingmaður getur mögulega verið ósammála mér um það en þetta er a.m.k. mín bjargfasta trú í málinu.