utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegur forseti. Ég vil ekki byrja á þeirri setningu sem oftast kemur upp úr hv. þingmanni þegar hann kemur í andsvar við mig og ég svara honum, sem er: Þetta svar veldur mér töluverðum vonbrigðum. Það er svona nokkurn veginn það sem hv. þingmaður segir alltaf þegar þingmenn Viðreisnar eiga orðastað við hann. Hér höfum við rætt heilmikið um Evrópusambandið og hv. þingmaður kvartaði undan því að það væri kannski of fyrirferðarmikið. Ég spurði beinlínis um viðskiptastefnu Bandaríkjanna og ekki bara viðskiptastefnu heldur nýja þjóðaröryggisstefnu þessa mikilvæga bandamanns okkar. Ég verð að segja það í fullri einlægni að heilmikið sem þar er inni gefur alveg tilefni til að valda manni smá áhyggjum. En hv. þingmaður fer strax í það að reyna einhvern veginn að koma skoti á Evrópusambandið. Auðvitað má margt finna að Evrópusambandinu. Hins vegar er það þannig að Evrópusambandið er núna að gera fríverslunarsamninga, t.d. við Mercosur, sem reynt er að koma í veg fyrir og það eru oftar en ekki mörg þessara afla sem Bandaríkin telja vera hin þjóðernislegu öfl í Evrópu sem þau binda miklar vonir við, sem berjast hvað mest víða í Evrópu gegn þessum nýja Mercosur-samningi, sem ég tel reyndar að sé bara til bóta af því að ég hef almennt trú á fríverslun. Það veldur mér vonbrigðum að hv. þingmaður, í stað þess að tala um Bandaríkin, því auðvitað skiptir stefna þeirra máli, fer beint í það að nota ferðina til að koma höggi á Evrópusambandið. Þannig að ég kannski ítreka spurninguna: Hvernig líst hv. þingmanni á þessa nýju tollastefnu Bandaríkjanna þar sem ekki eru aðeins notaðir tollar til að verja eigin framleiðslu heldur er beinlínis sagt í stefnunni að það eigi að nota tolla til að ná fram pólitískum markmiðum? Hvernig líst hv. þingmanni á þessa stefnu mikilvægasta bandamanns okkar? Og ég spyr hv. þingmann í fullri einlægni hvort hann geti notað þessar tvær mínútur sem hann á til að koma með sína sýn á það hvernig Íslendingar eiga að fóta sig í þessum töluvert nýju aðstæðum, hvort hann geti svarað þeirri spurningu og kannski geymt skot á Evrópusambandið fyrir aðrar ræður.