157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[22:03]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar og þær valda mér engum vonbrigðum af því að ég vil ræða þetta. Það liggur alveg fyrir, svo að við tölum bara íslensku, að Trump verður ekkert endalaust, hann er áttræður og það eru fáir ef nokkrir sem halda því fram að hann reyni að vera áfram. Áhyggjur mínar eru þessar — af því að ég held, auðvitað veit ég það ekki, að mjög margt af því sem hann er með verði tímabundið en það er ekki þannig að áhrif hans muni algerlega hverfa. En það sem ég held að taki lengstan tíma að fara er viðskiptastefnan. Demókratar hafa ekki verið fríverslunarsinnar. Repúblikanarnir hafa verið það undanfarna áratugi, það var einu sinni öðruvísi. Nú er hann kominn með þessa hörðu verndarstefnu og þú ert með Evrópusambandið sem er á nákvæmlega sama stað. Það er ótrúlegt að íslenskir Evrópusinnar viti þetta ekki. Ég hef átt samtöl við helstu forystumenn Evrópusambandsins. Þeir eru ekkert að þræta fyrir það. Það er stefna þeirra og hefur alltaf verið. En íslenskir ESB-sinnar segja: Nei, þeir eru bara eitthvað — en skoðum bara staðreyndir: Ég átti mjög mikil samskipti við Evrópusambandið þegar ég var utanríkisráðherra og það sem þeir leggja áherslu á og hafa alltaf gert er að ráða reglugerðarumhverfinu og stunda mjög tæknilegar viðskiptahindranir. Hv. þingmaður getur séð það þegar hann fer út í búð og kaupir amerískar vörur og sér litla hvíta miðann sem við höfum sett, við gætum að vísu fundið betri lausn á því en það er annað mál. En það er svona dæmi um tæknilega viðskiptahindrun. Þú leyfir vöruna en þú verður að hafa upplýsingar um efnisinnihaldið í 100 grömmum. Þú getur séð þetta alveg með því að lesa á þetta en þetta þýðir að það verður einhver að líma miða á hverja einustu dollu með tilheyrandi kostnaði. Bílarnir eru annað mál.

Þegar þú ert kominn með bæði Evrópusambandið og Bandaríkin með verndarstefnu í viðskiptum, hver á þá að keyra á það að við aukum frelsi í alþjóðaviðskiptum? (Forseti hringir.) Hver á að gera það? Starmer er ekki að fara að gera það. Á sínum tíma var Alþjóðaviðskiptastofnunin stofnuð og það voru Reagan og Thatcher sem höfðu forystu um það. Það eru engir núna og í fyrirsjáanlegri framtíð, af því að við erum að tala um Bandaríkin þá er alla vega enginn sem maður sér á sjóndeildarhringnum. En auðvitað getur það breyst (Forseti hringir.) og það eru kosningar á tveggja ára fresti í fulltrúadeildina, forsetakosningar á fjögurra ára fresti og á sex ára fresti í öldungadeildina. (Forseti hringir.) Auðvitað getur þetta breyst en eins og staðan er núna þá erum við ekki að sjá breytingar á því. En við fáum ekkert skjól fyrir frjálsa verslun með Evrópusambandinu. (Forseti hringir.) Þeir hafa alltaf verið verndarsinnar og verða það áfram og það hefur m.a. valdið okkur Íslendingum skaða.

(Forseti (BergÓ): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)