157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[22:07]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir yfirferð sína á þeirri skýrslu sem hér er til umfjöllunar. Ég hef blaðað í þessari skýrslu og finnst hún ágæt og fræðandi um helstu atriði í þeim mikilvæga málaflokki sem utanríkismál eru í okkar samfélagi og á okkar landi. Ég get ekki haldið því fram að ég sé sérfræðingur í öllum atriðum þar sem mér var fyrst sýndur sá heiður að vera beðin um að taka sæti í hv. utanríkismálanefnd í dag og á enn eftir að sitja formlegan fund þess efnis. En ég vildi koma hingað og impra á þeim atriðum sem mér þykja kannski hvað mikilvægust á þessum tímapunkti. Eins og flestir, ef ekki allir, hv. þingmenn hafa komið inn á í umræðunum hér í dag og í kvöld þá blasir það við öllum að það eru öryggis- og varnarmálin sem eru einna mikilvægust fyrir okkur, og ekki bara fyrir okkur heldur fyrir öll ríki Evrópu ef ekki heiminn allan.

Þetta er auðvitað að einhverju leyti ný staða fyrir okkur. Einhverjir hafa sagt, og hvort það stendur ekki í skýrslunni sjálfri, að teikn séu á lofti um að tímarnir séu viðsjárverðari en þegar kalda stríðið stóð sem hæst. Það er auðvitað eitthvað sem okkur ber öllum skylda til að taka mjög alvarlega. Varðandi okkar nærumhverfi er það auðvitað staðan í Úkraínu, eða landvinningastríð Rússlands eins og það var orðað í stefnunni, sem veldur okkur skiljanlega miklum áhyggjum. Stöðu sinnar vegna ætti Ísland að sperra eyrun sérstaklega og setjast upp í sæti sínu. Við vitum sem er að ef öll hefðbundin viðmið um alþjóðalög og -reglur eru virt að vettugi þá getur land eins og okkar ekki gengið að því sem vísu að það verði eins komið fram við okkur og við myndum gjarnan vilja koma fram við aðra.

Ég leyfði mér á dögunum í Istanbúl, þar sem ég var fulltrúi Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins, að orða það einhvern veginn á þann veg — þó að ég viti að það er svona rauður þráður í diplómasíunni að tala Ísland aldrei niður, við erum alltaf stór, við erum aldrei lítil — að í fjarveru alþjóðlegra reglna, eða „rule of law“, með leyfi forseta, séu öll ríki lítil. Ég held að það sé mjög dýrmætt fyrir Ísland að ég myndi halda að heilt yfir sé nokkuð þverpólitísk samstaða um mikilvægi þessa og að við gerum allt sem við getum til að stemma stigu við þessari þróun og gera allt sem við getum gert til þess að bæði aðstoða og tryggja okkar varnir samfara því.

Það sem gerðist kannski einna merkilegast hér í þessu húsi varðandi öryggis- og varnarmál er fyrsta varnarstefna fyrir Ísland sem var merkilegt skref fyrir margar sakir. Það dylst engum að það var ákveðin áskorun fyrir þá ríkisstjórn sem sat hér áður að það var kannski ekki hugmyndafræðilegur ágreiningur en menn horfðu mismunandi augum á helstu atriði þar, sem gerði textasmíði hvers konar erfiðari en ella. En ég held að það sé mikilvægt að þessi stefna hafi verið gerð. Þar er uppistaðan annars vegar vera okkar í Atlantshafsbandalaginu og svo tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin. Þetta er auðvitað gullið í okkar vörnum, ætla ég að leyfa mér að fullyrða, og ég sé ekki betur en að það sé ákveðin samstaða um að það verði að passa upp á það. Eitt dæmi þess er auðvitað að nú að stórauka fjárframlögin til NATO og þau fara stigvaxandi til næstu áratuga eða til 2035, að mig minnir, þar sem Ísland hefur undirgengist þetta skilyrði um 1,5% til varnartengdra verkefna.

Þetta skiptir máli og mér finnst áhugavert þegar ég glöggvaði mig á skoðanakönnun frá því í fyrra í skýrslunni — nú veit ég ekki alveg hversu margir voru spurðir en ég sá að það var vitnað í Maskínukönnun frá 2025 þar sem 57%, að mig minnir, voru sammála því að auka ætti framlög í öryggis- og varnarmál og 13% voru ósammála. Þessar tölur komu mér á óvart og eru kannski til marks um aðeins breyttan veruleika og kannski vonandi að Íslendingar séu almennt meðvitaðir um að það þurfi að kosta einhverju til til að geta staðið sæmilega að vörnum lands og þjóðar í þessu samstarfi sem er okkur mikilvægt.

En mig langar að nefna tvíhliða varnarsamstarfið við Bandaríkin, sem er auðvitað einstakt og skiptir okkur ofboðslega miklu máli. Varnarsamningurinn var gerður 5. maí 1951 og verður því 75 ára í næstu viku og ég held að ég hafi ekki heyrt hæstv. utanríkisráðherra minnast sérstaklega á það. Ég veit ekki hvort það verður svo sem mikið um húllumhæ og kannski ekki ástæða til en ég held að það sé samt ástæða til að við sýnum þessum 75 ára dýrmæta öldungi í okkar samfélagi virðingu.

Sem dæmi um það sem er gert vel myndi ég halda að almenn samstaða sé um að auka framlög til varnarbaráttu Úkraínu. Við viljum standa að þróunaraðstoð vitandi hvers konar forréttindaríki við erum oft. Við viljum gera okkar í að vera eitt af þeim norðurskautsríkjum, eitt af sjö. Allt þetta skiptir okkur máli. Þetta kostar auðvitað allt saman. Þetta er eitthvað sem við verðum öll að taka mjög alvarlega.

Ég ætla því í lokin að fá að segja, þrátt fyrir að það komi kannski tæknilega séð ekki þeirri skýrslu sem hér er til umræðu við, að ég er einlægt hugsi yfir því — og það veldur mér vonbrigðum að á þessum viðsjárverðu tímum, þegar við þurfum arnarfókus á það sem skiptir okkur mestu máli, og við vitum að það mun kosta fjármuni og erum sammála heilt yfir um að það skipti máli og að við aukum fé til að standa undir þessu — þá finnst mér synd að það eigi að eyða ógrynni af fjármunum og líka orku og fókus í að kljúfa þjóðina í herðar niður í vegferð gagnvart Evrópusambandinu. Það er bara mín skoðun. Ég heyri alveg hvað hv. stjórnarliðar segja um að þetta sé lýðræðisveisla og að hér sé bara verið að bjóða þjóðinni upp á einhvers konar skoðanakönnun o.s.frv. Það er samt sem áður mitt einlæga mat að skynsamlegra hefði verið að við myndum frekar fóta okkur betur í þeirri nýju stöðu sem Ísland er að finna sig í, nánast frá því að við urðum fullvalda ríki, áður en við hefðum farið í einhverja vegferð sem að mínu viti, þó að ég átti mig alveg á skoðanaágreiningi þar um, kemur þessum stærstu málum eins og öryggis- og varnarmálum lítið sem ekkert við. Ég veit að í varnarstefnunni er talað um aukið samstarf við Evrópusambandið eða önnur ríki varðandi fjölþáttaógnir og slíkt, sem er bara frábært og mjög skynsamlegt. En að mínu viti hefði verið betra að við hefðum reynt að halda fókusnum á þessum gríðarlega stóru og ofboðslega mikilvægu atriðum í íslensku samfélagi á þessum viðsjárverðu tímum.

Að öðru leyti vil ég hrósa hæstv. utanríkisráðherra fyrir mjög vel gerða skýrslu og mýmargt gott sem er gert í þágu utanríkismála hér á landi.