utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur kærlega fyrir hennar ræðu og óska henni til hamingju með utanríkismálanefnd og bara hlakka innilega til samstarfsins í nefndinni. Fyrst ætla ég að bregðast aðeins við einu sem hefur verið sagt hér og síðan að bera upp eina spurningu. Í fyrsta lagi er hér rætt um kostnað og fókus og mig langar bara að setja hlutina í smá samhengi. Sú þjóðaratkvæðagreiðsla sem er áformuð í ágúst er áformað að kosti í kringum 500 milljónir, auðvitað getur skeikað einhverjum 100 milljónum til eða frá en þetta er stærðargráðan. Síðan er það mat ráðuneytisins að viðræðurnar myndu kosta kannski rúmlega 1 milljarð yfir nokkurra ára tímabil. Það er líka mat ráðuneytisins að aðild okkar að Evrópusambandinu nettó muni kosta kannski eitthvað um 5 milljarða plús á ári miðað við það sem er í dag vegna þess að þetta er miðað við hvað Finnar borga, sem er 0,3% af vergri landsframleiðslu, og svo dragast frá þau gjöld sem við greiðum inn í EES í dag. Þetta eru svona þessar tölur: 1, 2, 5 milljarðar. Til samanburðar myndu þær skuldbindingar sem felast í því að við erum í NATO og að við höfum skuldbundið okkur til að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu til varna nema um 75 milljörðum árlega. Þannig að áður en við segjum fókus hér og fókus þar þá verðum við að átta okkur á því að það er ekki bara Evrópusambandið sem kostar, þær skuldbindingar sem felast í veru okkar í NATO munu líka koma til með að kosta okkur heilmikið.
Mig langar þá að spyrja að einu, af því að þingmaðurinn nefnir hér í ræðunni mikilvægi alþjóðalaga: Er þingmaðurinn ekki sammála því að það séu ekki bara alþjóðalög sem skipta ríki máli heldur líka að vera í sterkum bandalögum? Þá velti ég fyrir mér hvaða bandalög það eru sem þingmaðurinn vill helst líta til ef hún er sammála því að við þurfum sannarlega að taka þátt í bandalögum.