utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni, það væri betra að við gætum öll verið sammála um að ganga í Evrópusambandið. Það væri allt saman miklu þægilegra og það væri auðvitað miklu þægilegra fyrir minn málstað en því er ekki til að dreifa. Og svo ég reyni aðeins að útskýra mína sýn þá þarf maður auðvitað að reyna að gera það sem er réttast fyrir Ísland. Ástæða þess að ég spyr um bandalög — reyndar þá kannski kom fram sú skoðun en það er ekkert endilega skoðun hv. þingmanns að bandalög séu lykilatriði fyrir lítið ríki en mér finnst það vera mjög mikilvægt. Mér finnst að alþjóðalög ein og sér muni ekki tryggja öryggi okkar. Ef svo væri værum við ekki í NATO. Við myndum bara treysta á grunnreglur Sameinuðu þjóðanna um að það sé bannað að ráðast á önnur ríki og það væri bara gott, það myndi bara gilda. En við erum í NATO vegna þess að við vitum að alþjóðalög ein og sér duga ekki heldur viljum við vera í einhverju bandalagi sem tryggir okkar hagsmuni.