Störf þingsins.
Frú forseti. Í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum má sjá að það eru skiptar skoðanir á því hvernig skuli fara með rétt foreldra til fæðingarorlofs. Sumir vilja sjá breytingu á ákvæðum laga um fæðingar- og foreldraorlof er varðar sjálfstæðan rétt foreldra til fæðingarorlofs til allt að sex mánaða með tilteknum framsalsheimildum með þeim hætti að foreldrum væri einfaldlega í sjálfsvald sett hvernig tólf mánaða fæðingarorlofi verði skipt á milli foreldranna. Aðrir sjá slíkar hugmyndir sem lóð á vogarskálar þess að halla muni á rétt kvenna þar sem það verður oftar móðirin sem mun taka lengri hluta fæðingarorlofsins heldur en faðirinn með þeirri augljósu afleiðingu að móðirin verður lengur frá vinnu sinni, ævitekjur hennar verða minni, að því gefnu að aðrir þættir séu fastar, lífeyrisréttindi minni svo og möguleikar til starfsframa. Ég hef sagt það áður í þessum ræðustól að það kunni að vera að sá árangur sem við höfum náð í jafnréttismálum sé okkur svo sjálfgefinn að við höfum gleymt því hvað til þurfti til að hann næðist. Það þurfti nefnilega að hafa fyrir því að þessum árangri væri náð og má ekki gera lítið úr því með skammtímahugsun.
Frú forseti. Ég er sannfærður um það að samfélag þar sem jafnrétti ríkir sé samfélag sem að jafnaði nær betri árangri, hvort tveggja félagslega og efnahagslega. Hugmyndir þess efnis að hlutverk kvenna séu inni á heimilunum og þær ali þar önn fyrir fjölskyldunni á meðan bóndinn dregur björg í bú eru að mínu mati afturhaldssamar og munu að lokum leiða til þess að við höfum það öll verr. Það er auðvitað þannig að við þurfum að koma málum þannig fyrir að öll kerfi samfélagsins tali betur saman en nú er. Þannig taki leikskóli við af fæðingarorlofi, atvinnulíf og skóli samræmi frítöku foreldra og barna og þar fram eftir götunum. Á það hefur verið bent að fæðingartíðni fari lækkandi á Íslandi og um sé að kenna að íslenskar konur eignist færri börn. Það kann að vera rétt en ástæðan er sú að færri konur á unglingsaldri eignast börn, þ.e. færri börn eignast börn. Er það ekki gott? Konur í öðrum aldurshópum eignast giska sama fjölda barna.
Frú forseti. Ég sé rétt feðra til að fá tíma með börnum sínum ungum sem heilagan (Forseti hringir.) og ég leyfi mér að hvetja unga menn til að nýta þennan rétt. Ég vildi óska mér að ég hefði notið nokkurra mánaða með mínum börnum ungum.