Störf þingsins.
Frú forseti. Samgöngustaða Vestmannaeyja er með öllu óboðleg. Vegna vélarbilunar var skipið í tæplega sjö tíma til Eyja í gær frá Þorlákshöfn sem undir venjulegum kringumstæðum tekur innan við þrjá tíma. 1. maí er handan við hornið, stórir viðburðir fram undan og enn er siglt í Þorlákshöfn. Á meðan blæðir samfélagið tekjum og atvinnulífið tapar milljónum og íbúar sitja uppi með kostnaðinn. Engar raunverulegar lausnir eru í sjónmáli. Tölurnar tala sínu máli. Í mars átti að fara 217 ferðir samkvæmt áætlun um Landeyjahöfn en aðeins voru farnar 62 ferðir. Það eru einungis 28% af áætluðum ferðum og gríðarleg skerðing á þjónustu. Farþegar voru tæplega 9.000 í stað 19.000 að meðaltali síðustu þrjú ár. Þetta samgöngukerfi er í lamasessi. Ástandið kostar einnig skattgreiðendur stórfé. Þegar siglt er í Þorlákshöfn þarf skipið að ganga á olíu í stað rafmagns með allt að 50 millj. kr. aukakostnaði á mánuði. Orkukostnaður er um 63% hærri en við siglingar um Landeyjahöfn. Þetta er opinbert fjártjón ofan á tjón fyrirtækja og heimila. Sjávarútvegurinn flytur landanir annað, vinnslur bíða tómar og starfsfólk missir tekjur. Ferðaþjónustan sér afbókanir hrannast upp og eitt fyrirtæki missti 15 milljónir á tveimur helgum. Íþróttafélög þurfa að gista á höfuðborgarsvæðinu fyrir hundruð þúsunda á nótt. Fólk missir vinnudaga, skóladaga og dýrmætan tíma.
Nú er nóg komið, kæri þingheimur. Herjólfur er bilaður og siglir á minna afli og ræður illa við veður. Vegagerðin verður strax að leigja aðra ferju á meðan og tryggja aðila sem býr yfir meiri afköstum til dýpkunar Landeyjahafnar. Eyjamenn eiga rétt á samgöngum sem virka. Botninum hefur verið náð, frú forseti.