Störf þingsins.
Forseti. Í gær var umræða um skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál. Ég gat því miður ekki tekið þátt í umræðunni en hef náð að hlusta á margt sem þar kom fram. Í andsvörum sínum í umræðunni kallaði hæstv. utanríkisráðherra þingsályktunartillögu Miðflokksins í öryggis- og varnarmálum loðmullu. Já, gott fólk, loðmullu kallaði ráðherrann þingsályktunartillöguna. Við þessu vil ég bregðast. Hér reynir ráðherrann nefnilega að afvegaleiða þing og þjóð, þyrla ryki í augu almennings. Utanríkisráðherra veit nefnilega hver tilgangurinn var með framlagðri tillögu Miðflokksins og árangurinn þekkir hún einnig. Tillaga Miðflokksins í öryggis- og varnarmálum, sem ráðherra kallaði loðmullu, lagði nefnilega grunninn að samkomulagi allra flokka á Alþingi um stefnu í öryggis- og varnarmálum. Kannski ergir sú staðreynd ráðherrann að Miðflokkurinn hafði mikið til síns máls og á hann var hlustað þegar til kastanna kom. Utanríkisráðherra veit auðvitað að meginatriði þingsályktunartillögu Miðflokksins voru m.a. felld inn í hennar eigin þingsályktunartillögu og stefnan þannig gerð að órjúfanlegum hluta af þjóðaröryggisstefnu Íslands og að framkvæmd hennar ætti að lúta eftirliti þjóðaröryggisráðs sem forsætisráðherra stýrir, en ekki utanríkisráðherra. Ég velti því upp hvort ekki sé rökrétt framhald að opna þjóðaröryggisstefnuna og fella stefnu í öryggis- og varnarmálum þar undir formlega í viðauka þar sem þetta tvennt er órjúfanlegt. Utanríkisráðherra veit líka að Evrópusambandið var fellt út úr texta um samstarf enda bætir tollabandalagið Evrópusambandið nákvæmlega engu við og hefur ekkert að gera með stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum, nákvæmlega ekki neitt. Utanríkisráðherra veit líka að það er blásið á landvinninga hennar innan Stjórnarráðsins er varða hugmyndir hennar um stofnun nýrrar einingar við framkvæmd öryggis- og varnarmála sem heyri undir utanríkisráðuneytið. Þegar utanríkisráðherra dylgjar eins og hún gerði í umræðunni í gær um Miðflokkinn þá veltir maður fyrir sér hvort ráðherranum hafi kannski ekki hugnast sú mikilvæga sátt allra flokka á Alþingi sem náðist um stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum.