áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Það var hér að mörgu leyti merkilegur opinn fundur hv. utanríkismálanefndar í gær þar sem hæstv. forsætisráðherra sat fyrir svörum. Í inngangsorðum sínum komu fram upplýsingar er varða yfirvofandi atkvæðagreiðslu í lok ágúst um svokallaðar áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið sem eru þess eðlis að ég verð að óska eftir því að virðulegur forseti skapi tíma hér í störfum þingsins til að hægt sé að ræða þá breytingu, þá eðlisbreytingu, sem nú virðist orðin á málinu. Nú er þetta allt í einu orðið þriggja fasa ferli þar sem það verður atkvæðagreiðsla í lok ágúst þar sem, verði niðurstaðan sú að landsmenn segi já, hefur hingað til verið talað á þeim nótum að seinni fasinn væri atkvæðagreiðsla um samning sem lægi fyrir. Í gær kom í ljós að Kristrún Frostadóttir, hæstv. forsætisráðherra, virðist ætla að leggja eitthvert sjálfstætt mat á það hvort samningurinn verði lagður fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu. Það hefur enginn heyrt nefnt og til að mynda fólk sem ætlar að láta atkvæði sitt ráðast af því (Forseti hringir.) að fá að sjá hvað er í boði, kíkja í pakkann, á núna enga vissu um að það verði raunin, ef mat forsætisráðherra verður með þeim hætti að samningurinn (Forseti hringir.) verði ekki lagður fyrir þjóðina að afloknum viðræðum. Ég bara hvet virðulegan forseta til að (Forseti hringir.) skapa hér rými í störfum þingsins til að forsætisráðherra komi í þingsal og ræði þetta (Forseti hringir.) vegna þess að þetta voru ekki forsendurnar sem málið var rætt út frá við fyrri umræðu þess.