157. löggjafarþing — 101. fundur,  28. apr. 2026.

áframhald aðildarviðræðna við ESB.

[14:10]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Ég veit nú ekki hvernig þetta varðar fundarstjórn forseta, það er ekkert við hana að athuga. En aðeins til að fara yfir málið fyrir hv. þm. Bergþór Ólason og til að útskýra aðeins hvernig ferli aðildarviðræðna og þá hugsanlegrar aðildarumsóknar gengur fyrir sig þá er það þannig að þegar aðildarsamningur liggur fyrir þá þarf að undirrita hann. Þeir sem undirrita hann eru oftast æðstu fulltrúar hvers ríkis og í þessu tilfelli yrði það auðvitað hæstv. forsætisráðherra sem myndi undirrita samning um aðild Íslands að Evrópusambandinu með fyrirvara um samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu, þings og aðrar nauðsynlegar breytingar. Það er ekkert fréttnæmt að það yrði forsætisráðherra sem myndi þurfa að taka ákvörðun um að undirrita samning um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu fyrir Íslands hönd. Ég sé ekki að þetta kalli á einhverja umræðu eða feli í sér einhverja eðlisbreytingu. Það er einfaldlega svo. Það er auðvitað eðlilegt að forsætisráðherra Íslands undirriti ekki slíkan samning nema forsætisráðherra telji hann viðunandi.