157. löggjafarþing — 101. fundur,  28. apr. 2026.

Geðheilbrigðismál.

[14:28]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að taka þátt í þessari sérstöku umræðu hér í dag. Ég ætla að beina máli mínu í þessum fjölbreytta málaflokki í dag að viðkvæmum hópi fólks í samfélaginu sem fellur á milli kerfa. Þetta á sérstaklega við um einhverft fólk og ungt fólk með fjölþættan vanda og einstaklinga sem þurfa samþætta geðheilbrigðisþjónustu og endurhæfingu en fá hann ekki. Fréttaskýringarþátturinn Kveikur á RÚV vakti marga til umhugsunar í mars síðastliðnum en þar birtist skýrt veruleiki einhverfra einstaklinga á Íslandi. Einhverft fólk mætir því miður lokuðum dyrum og skilningsleysi í kerfinu en talið er að um 8.000 einstaklingar á fullorðinsaldri í landinu séu einhverfir og glími við áskoranir í daglegu lífi. Í umfjöllun Kveiks kom fram að a.m.k. 200 einstaklingar með einhverfu á aldrinum 18–30 ára væru í ráðaleysi vegna skorts á þjónustu. Þar kom líka fram að foreldrar margra hefðu horfið af vinnumarkaði sökum álags, farið á örorkubætur og upplifað sjálfsvígshugsanir vegna úrræðaleysis. Vandinn byrjar heldur ekki þegar fólk er fullorðið. Opinberar tölur sýna að haustið 2025 biðu 717 börn eftir greiningu hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð og um 2.500 börn hjá Geðheilsumiðstöð barna. Þar af biðu um 650 börn eftir mati vegna gruns um einhverfu og áætlaður biðtími var a.m.k. 34 mánuðir. Staðan er sú að biðlistar eru að lengjast.

Einstaklingar á einhverfurófi eru í mun meiri hættu en aðrir á að þróa með sér hamlandi geðræna erfiðleika og skýrslur sýna að um 70% einhverfra glíma jafnframt við geðraskanir. Hér er æpandi þörf á sérhæfingu, samfellu og fjölbreyttum úrræðum sem mæta fólki þar sem það er statt. Þetta á ekki síst við um ungt fólk sem hvorki er í námi, vinnu né annarri virkni, svokölluðum NEET-hóp, sem glímir við alvarlegan og fjölþættan vanda sem hamlar þátttöku í daglegu lífi, námi, starfi og samfélagi.

Á síðasta kjörtímabili var gerður þríhliða samningur milli Janusar endurhæfingar, heilbrigðisráðuneytisins og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Tilgangurinn með samningnum var að grípa þennan hóp betur. Þar var veitt þverfagleg geðendurhæfing sem bar raunverulegan árangur. Í mínum huga skiptir heiti úrræðisins ekki máli heldur þjónustan sem þar var veitt. Þjónustan var byggð á gagnreyndum aðferðum, nýjustu þekkingu og einstaklingsmiðaðri nálgun. Með þessum þríhliða samningi var heilbrigðisráðuneytið í reynd að staðfesta að slík endurhæfing væri samþætt félags- og heilbrigðisþjónustu. Endurhæfing af þessu tagi snýst ekki aðeins um meðferð í þröngum skilningi heldur um daglega færni, félagslega þátttöku, virkni og stuðning við fólk við að ná betri tökum á eigin lífi. En þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um að efla geðheilbrigðisþjónustu, sérstaklega við börn og ungmenni, þá var brugðið á það ráð að rifta þessum samningi á síðasta ári. Í kjölfarið staðfesti heilbrigðisráðherra hér á Alþingi að sambærileg þjónusta myndi standa hópnum til boða. Staðreyndin er því miður önnur.

Í skýrslu um málefni fullorðinna einhverfra kemur fram að sérhæfð geðheilbrigðisþjónusta aðlöguð að einhverfu sé lítil og geðheilsuteymi höfuðborgarsvæðisins meti það svo að um fjórðungur þeirra sem þjóna á sé á einhverfurófi en teymin telja sig þó ekki búa yfir nægri sérhæfingu til að veita þessum hópi árangursríka meðferð.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að standa hér og segja að þetta sé einfalt mál og við þessu sé einföld lausn. Verkaskipting milli þjónustustiga í geðheilbrigðiskerfinu er engan veginn nægilega skýr. Það eykur álag á heilsugæslu, skerðir samfellu í meðferð og veldur því að fólk veit ekki hvert það á að leita. Sumir lenda á biðlista. Sumir fá synjun, sumir fá enga þjónustu fyrr en vandinn er orðinn töluvert þyngri. Og sumir gefast einfaldlega upp. Þessi staða í geðheilbrigðiskerfinu er óboðleg.

Virðulegi forseti. Okkur skortir fjölbreytt úrræði, samþætta geðendurhæfingu sem sameinar heilbrigðisþjónustu, félagslegan stuðning, virkni og einstaklingsmiðaða nálgun. Þegar sérfræðingar og geðlæknir segja stöðu geðheilbrigðisþjónustu hér á landi vera skammarblett á kerfinu okkar þá ber okkur að hlusta. (Forseti hringir.)

Hæstv. ráðherra fékk fyrir umræðuna sendar áherslur frá mér en samhliða því vona ég að það sem komi fram í þessari umræðu sé hvað hæstv. heilbrigðisráðherra finnst persónulega um stöðu mála í geðheilbrigðismálum hér á landi.