Geðheilbrigðismál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Norðaust. fyrir að efna til umræðu um geðheilbrigðismál sem eru jú áherslumál ríkisstjórnar. Hvað varðar fullyrðingu þingmanns í spurningum sem lagt var upp með um misræmi milli yfirlýsinga og raunverulegrar þjónustu þá er ráðherra ekki sammála öllu því mati. Sumarið 2025 opnaði ný þjónustuleið innan Hringsjár, Víðsjá, sem hefur það að markmiði að veita ungmennum einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu og starfsendurhæfingu til að bæta líðan, auka virkni, efla starfsgetu og félagsfærni. Kröfulýsing um innihald og veitingu þjónustu er sú sama og var í samningum við Janus. Í Víðsjá starfar fjöldi starfsstétta í takt við þarfir og óskir notenda. Aðgengi að þjónustunni hefur ekki breyst og tilvísunarferlið það sama. Viðmið fyrir þátttöku er óbreytt; taugaþroskaröskun, einkum einhverfa, og/eða geðrænn vandi sem valdi skertri samfélagsþátttöku ásamt því að einstaklingurinn þarf að vera fær um að sinna endurhæfingu. Umfang samnings, þ.e. fjöldi plássa, er minna en áður var af þeirri einföldu ástæðu að fyrra úrræði var aldrei fullnýtt. Niðurstaða Virk og ráðuneytis er að sú þjónusta sem boðið er upp á hjá Víðsjá sé í engu lakari en þjónustan sem var.
Hvað varðar spurninguna um að einhverfir fái synjun inn í geðheilbrigðisþjónustu hjá geðheilsuteymum má sjá að svarið sem vitnað er til nær aftur til ársins 2020 en áður var þjónustan ekki talin nægilega sértæk fyrir þarfir einstaklinga með einhverfu. Frá því í byrjun árs í fyrra er einhverfa hins vegar ekki frávísunarástæða og unnið hefur verið að því að efla heilbrigðisþjónustu fyrir einhverft fólk. Ávallt er samt nauðsynlegt að meta hvort tiltekið úrræði henti og í sumum tilvikum getur verið betra að beina einstaklingi í annað úrræði.
Frú forseti. Hafið er samtal við ráðuneyti félagsmála um uppbyggingu á þekkingar- og þjónustusetri, svokölluðu einhverfusetri, og verið er að skipa undirbúningshóp. Skortur á viðeigandi úrræðum getur haft verulegar afleiðingar fyrir einhverfa einstaklinga, bæði fyrir þá sjálfa sem og aðstandendur, og hugsanlega leitt til versnandi heilsu, aukins álags og brottfalls úr námi eða af vinnumarkaði. Það er óumdeilt að nauðsynlegt er að bæta skipulag, samfellu og þjónustu fyrir þennan hóp og hindra að slíkt gerist og væri einhverfusetur mikilvægt í því samhengi. Til að styrkja geðheilbrigðisþjónustu við einhverfa þarf að efla þekkingu þjónustuveitenda á einhverfu sem og að styrkja geðheilbrigðisþjónustu almennt, bæði fyrir börn og fullorðna, og eru þar stigin stór skref í fjárlögum ársins. Geðheilsumiðstöð barna, BUGL og Ráðgjafar- og greiningarstöð voru styrkt sem og geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Lögð er áhersla á ráðgjöf og stuðning við foreldra barna með alvarlega einhverfu en slíkt getur dregið úr álagi og minnkað líkur á alvarlegum vanda síðar og þar með komið í veg fyrir meiri þörf fyrir umfangsmeiri þjónustu.
Áður var nefnt að geðheilsuteymin eru að efla þjónustu við fullorðna einstaklinga. Geðsvið, þar með göngudeild lyndisraskana á Landspítala, hefur lagt sig fram um að veita þessum hópi þjónustu til jafns við aðra. Almennt þarf að leggja áherslu á að geðþjónusta við einhverfa verði styrkt og einhverfumiðuð nálgun útfærð á öllum þjónustustigum. Þá þarf sérstaklega að þróa langtímaeftirfylgd. Loks geta einhverjir fengið þjónustu sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna og -samtaka og kanna þarf sérstaklega hvort fjarheilbrigðisþjónusta geti átt hér við. Það er því fjöldi úrræða sem sinnir geðheilbrigðisþjónustu við einhverfa einstaklinga en engu að síður er ljóst að gera þarf betur hvað sérhæfingu varðar og að því er nú unnið. Þá er þörf á vegvísun um kerfið en það yrði eitt af hlutverkum einhverfuseturs.