Geðheilbrigðismál.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu sem er auðvitað um mjög víðtækt mál. Það er annars vegar geðheilbrigðismál og mér heyrist að umræða um einhverfa einstaklinga komi líka inn í það. Bæði einhverfir og þeir sem glíma við geðsjúkdóma eru mjög fjölbreyttur hópur og erfitt að ræða einhverja heildarlausn sem hentar öllum í þeim efnum. Þetta á auðvitað við um þá eins og alla aðra í okkar ágæta landi. En ætli það megi nú ekki samt segja að það sem þetta fólk eigi allt sammerkt með okkur hinum sem ekki glímum við geðrænan vanda eða taugaröskunarsjúkdóma er að menn vilja allir hafa einhvern tilgang í lífinu og hafa metnað til þess að þjóna, ef ekki samfélaginu öllu þá a.m.k. sínu nærumhverfi með þátttöku á vinnumarkaði í einu formi eða öðru. Það hefur í sjálfu sér margt breyst til batnaðar í þeim efnum. Það hefur orðið vitundarvakning hjá atvinnulífinu um að ábyrgðin hvíli auðvitað að miklu leyti á atvinnulífinu að taka þátt í því virkniúrræði sem nauðsynlegt er að til staðar sé fyrir fólk með skerta starfsgetu. Það hefur verið gripið til ýmissa virkniúrræða eins og ráðningarstyrkja til atvinnurekanda. Þetta á nú sérstaklega við um atvinnulausa en ég held að fatlaðir geti sótt í þetta líka og ég held að það væri ráð að hafa mikla eftirfylgni og skoða það rækilega hvernig þessi úrræði hafa í raun virkað fyrir fólk með einhverfu, einhverfa fullorðna, og þá sem glíma við geðsjúkdóma. Er þetta úrræði raunverulega að virka? Ef það er ekki að virka þá er full ástæða til að brýna bæði atvinnulíf og okkur hér í stjórnmálum og stjórnvöld til að taka þá málið til endurskoðunar (Forseti hringir.) og gera þetta úrræði þannig úr garði að það raunverulega gagnist þeim sem á þurfa að halda.