157. löggjafarþing — 101. fundur,  28. apr. 2026.

Geðheilbrigðismál.

[14:54]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þarfa umræðu og hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég sat nýlega fund í grunnskóla í Reykjavík með góðum vinahjónum mínum, Siggu og Gunna. Við vorum þar 13 fullorðnir að ræða erfiða stöðu sex ára sonar þeirra; hann glímir við langvinn veikindi vegna erfðabreytu, þjáist af kvíða og er á einhverfurófi. Foreldrarnir eyða öllum tíma utan vinnu í að berjast við kerfið sem vinnur á móti þeim. Heimilið er undirlagt og 11 ára bróðir hans finnur vel fyrir álaginu. Sigga hefur þurft að minnka við sig í vinnu því drengurinn hennar á hvergi heima í samfélaginu. Því var lýst að drengurinn eyddi heilu og hálfu dögunum í hnipri fyrir framan kennslustofu eða vafrandi um ganga skólans. Kennarar og starfsfólk skólans gera allt sem þau geta til að mæta honum en hann einfaldlega passar ekki inn í þetta box. Því spyr ég kannski: Af hverju fær hann ekki úrræði við hæfi? Jú, það kom nefnilega svo vel fram á fundinum. Foreldrunum hefur ekki verið leiðbeint um hvaða box eigi að haka í, hvaða blað eigi að senda hvert. Ráðleggingin sem þau fá er: Tilkynnið ykkur til barnaverndar. Staða þeirra í dag er enn einn biðlistinn eftir uppáskrift, 36 mánaða bið, er þeim sagt, í það minnsta.

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra segir: Áherslumál ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórn sem lofaði stuðningi og aðstoð við börn með fjölþættan vanda. Viðreisn setti geðheilbrigðismál efst á blað í sinni kosningabaráttu. Hvað finnst fólki svo um árangurinn? Það er eitthvað annað sem á hug þeirra allan. Kerfisbresturinn er alvarlegur; einhverfir eru afgangsstærð í samfélaginu og hæstv. ráðherra hefur úthýst þeim enn frekar eins og skjólstæðingar Janusar fengu að reyna. Við þurfum minna blaður, færri blaðamannafundi og fögur fyrirheit. Það þarf að finna þessu fólki stað í okkar samfélagi strax.