Geðheilbrigðismál.
Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessum mikilvægu málum og hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir hennar skýru svör. Málshefjandi, hv. þm. Ingibjörg Isaksen, sat í meiri hluta á síðasta kjörtímabili og hennar flokkur um langt árabil. Það er því ekki ósanngjarnt að fullyrða að fyrri ríkisstjórn skilaði málaflokknum ekki frá sér í ásættanlegu ástandi eftir sjö ára samfellda stjórnarsetu. Skortur á samfelldri þjónustu, hvort sem um er að ræða bráðaþjónustu eða langtímaúrræði, er dýrkeyptur fyrir samfélagið. Hv. málshefjandi bendir á kerfisbrest í geðheilbrigðisþjónustu við einhverfa einstaklinga og sú gagnrýni á rétt á sér. Staða fullorðinna einhverfra er ekki ásættanleg og verulegur skortur er á sérhæfðum úrræðum. Ríkisstjórnin hefur nú þegar ákveðið að grípa til aðgerða og eins og fram hefur komið er unnið að því að endurskoða aðgengisskilyrði svo þessi hópur falli ekki milli kerfa. Heilbrigðisráðherra hefur lagt áherslu á að styrkja þjónustu á öllum stigum og hefur m.a. sett fram hugmyndir um stofnun einhverfuseturs í samstarfi við önnur ráðuneyti. Slík uppbygging tekur hins vegar tíma. Þegar kemur að þessum viðkvæma málaflokki skipta forvarnir og snemmtæk íhlutun lykilmáli; því fyrr sem gripið er inn í með viðeigandi stuðningi og fræðslu, þeim mun meiri líkur eru á betri líðan og virkni til lengri tíma. Málshefjanda hefur verið tíðrætt um úrræði sem í boði voru hjá Janusi sem nú hefur hætt starfsemi. Fulltrúar í velferðarnefnd heimsóttu nýlega VIRK sem tóku hluta skjólstæðinga Janusar og þar kom fram að almennt hafi vel tekist til. Það er þó ljóst að breytingar sem þessar geta verið krefjandi fyrir einstaklinga og mikilvægt að fylgja þeim vel eftir.
Að lokum vil ég aftur þakka málshefjanda fyrir mikilvæga umræðu og heilbrigðisráðherra fyrir skýr og upplýsandi svör.