Geðheilbrigðismál.
Frú forseti. Ég vil þakka þeim sem tóku þátt í umræðunni í dag kærlega fyrir. Mér finnst hins vegar kominn tími til að núverandi ríkisstjórnarflokkar fari að axla ábyrgð á stöðunni og fari að stýra landinu og taka ákvarðanir hér þegar varðar viss málefni í stað þess að vísa alltaf í fortíðina. Þingmanninum til upplýsingar, sem hér er að yfirgefa salinn, er ýmislegt sem síðasta ríkisstjórn gerði þegar kom að geðheilbrigðismálum, m.a. aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum sem var vísað áðan. Við gerðum þríhliða samning við Janus geðendurhæfingu og auk þess voru gerðir samningar við hina ýmsu sérfræðilækna og aðila í heilbrigðisstéttunum en þeir höfðu verið samningslausir í á fimmta ár.
Mig langar hins vegar aðeins að fara yfir það nýja úrræði sem hæstv. ráðherra sagði að hefði tekið við og væri sambærilegt Janus endurhæfingu. Það er hins vegar þannig að þetta nýja úrræði, og nú veit ég að þar eru allir af vilja gerðir til að mæta þessum hópi, hefur ekki tekist að mæta þörfum stórs hóps. Það berast upplýsingar núna um að nokkrum aðilum hafi m.a. verið vísað úr þessu úrræði og m.a. misst endurhæfingarstyrkinn sinn vegna þess að þjónustuþarfir þeirra eru taldar of þungar. Það er þannig, og við skulum bara tala hreint út, að það var verið að loka úrræði sem raunverulega virkaði fyrir þennan hóp; úrræði sem búið var að byggja upp í 25 ár með tilheyrandi þekkingu og reynslu byggða á vísindum og rannsóknum til þess að stofna annað og það var ekki tilbúið þegar hinu úrræðinu var sagt upp. Það er bara staðreynd og ég veit að það er verið að byggja það upp og það er jákvætt en tölum samt um hlutina eins og þeir eru. Á meðan var þessi viðkvæmi hópur skilinn eftir í tómarúmi og algeru öryggisleysi.
Mér finnst það ábyrgðarleysi. Ég velti því fyrir mér og vil spyrja hæstv. ráðherra hvaðan hún hafi þær upplýsingar um að allir hafi fengið þjónustu við hæfi því það eru svo sannarlega ekki þær upplýsingar sem ég hef. En ég fagna því að hér eigi að fara í vissar aðgerðir til þess að bæta stöðuna og ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort það séu tilætlaðir fjármunir í þau verkefni (Forseti hringir.) og hvort þær séu markmið um hvernig við ætlum að ná árangri í þessum málaflokki. (Forseti hringir.) Ég fagna því að það eigi að vera vegvísun um kerfið og sannarlega veitir ekki af því og eins fagna ég líka hlutverki einhverfuseturs. (Forseti hringir.) Ég hefði gjarnan viljað sjá að stjórnvöld myndu styrkja og styðja við Einhverfusamtökin sem eru m.a. að sinna þessari þjónustu sem einhverfusetrið á að taka við í framhaldinu. En ég þakka fyrir umræðuna.