upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Þekki ég málið nokkuð af því að ég hef setið nokkuð lengi í hv. utanríkismálanefnd. Það hefur verið farið mjög mjúklega að meiri hlutanum þegar menn hafa einfaldlega verið að biðja um það að fá þessar upplýsingar. Ástæðan fyrir því að það er farið mjúklega er einfaldlega vegna þess að það er miklu betra ef við erum að ræða hér um efni máls en ekki sífellt um vinnubrögð í hv. þingnefndum. Hv. þingmaður nefndi hér mjög mikilvæga beiðni sem er búið að vera að sitja á en þar eru líka fleiri beiðnir um minnisblöð sem fóru fyrir ríkisstjórn þegar menn voru síðast í aðildarviðræðum, sem fóru fyrir utanríkismálanefnd, rýniskýrslurnar og fleiri gögn sem eru nauðsynleg til að taka áður en menn fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu.
Virðulegur forseti. Það er ekki endalaust hægt að vera ljúfur og góður. (Forseti hringir.) Það verður að koma sá tími að þingið, meiri hlutinn í þinginu og virðulegur forseti geri það sem á að gera og það er að koma fram með gögn.