157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB.

[15:07]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Til þess að reyna aðeins að skýra þetta mál fyrir þeim sem á hlýða þá kom fram fyrir nokkru beiðni af hálfu minni hlutans um upplýsingar til Evrópusambandsins. Nú er það þannig að 51. gr. þingskapa kveður á um upplýsingabeiðni til stjórnvalda og þar sem Ísland er ekki aðili að Evrópusambandinu þá hefur það verið túlkað þannig að þessi upplýsingabeiðni eigi fyrst og fremst við þegar um er að ræða spurningar til íslenskra stjórnvalda. Nú hefur þessi beiðni komið fram og er nokkuð óhefðbundið að biðja Evrópusambandið um upplýsingar með þessum hætti. Engu að síður kemur þessi umræða mér aðeins á óvart vegna þess að tillagan kom fram á fundinum áðan og formaður lagði fram skriflega breytingartillögu til þess að reyna að koma til móts við þetta sjónarmið. Það náðist ekki sátt um hana á fundinum þannig að málinu var frestað í von um að hægt væri að koma sér saman um texta sem við gætum öll staðið að baki. Þannig að það kemur mér dálítið á óvart að málið sé komið í fundarstjórn forseta þar sem ég taldi að málið væri í farvegi.