upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Virðulegi forseti. Ég vil bara vekja athygli forseta á alvarleika þessa máls. Hér er verið að biðja um upplýsingar sem eiga erindi til þings og þjóðar. Reyndar er það þannig að hæstv. ríkisstjórn hefði átt að hafa frumkvæði að því að koma með þessar upplýsingar. Svo er ekki. Núna í margar vikur eru menn búnir að vera að biðja um upplýsingar. Það er alltaf grafalvarlegt mál, en sérstaklega í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu, að framkvæmdarvaldið haldi frá upplýsingum og þingnefndir noti meirihlutavald sitt til að halda aftur af upplýsingaöflun. Hæstv. utanríkisráðherra flutti sína skýrslu hér þar sem hún ræddi nákvæmlega þessi mál, hvað það væri alvarlegt þegar menn gengju svona fram í öðrum löndum. Menn verða að ganga hér á undan með góðu fordæmi. (Forseti hringir.) Þetta ætti ekki að vera eitthvert sérstaklega vont fordæmi. Þetta er eðlilegasti hlutur í heimi og það er grafalvarlegt mál að upplýsingum sé haldið frá þingi og frá þjóðinni.