157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

skotvopnalög.

526. mál
[15:47]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að forgangsraða tíma sínum með þeim hætti að ráðherra komi til að svara fyrirspurn sem ég ætla að fara aðeins yfir hvers vegna hún er til komin. Það er mjög mikilvægt að hafa góð lög og góðar reglur um skotvopn af ástæðum sem ég tel að ég þurfi ekkert sérstaklega að fara yfir en um það er ekki deilt. Hins vegar spyr ég hæstv. ráðherra:

1. Hvað líður setningu reglugerða á grundvelli vopnalaga, nr. 16/1998, í kjölfar þeirra breytinga sem urðu á lögunum og tóku gildi 24. febrúar 2024?

2. Telur ráðherra að 23. gr. vopnalaga, nr. 16/1998, samræmist 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands um friðhelgi heimilisins?

3. Telur ráðherra að innheimta gjalda vegna íhluta skotvopna samræmist meðalhófsreglu?

4. Telur ráðherra eðlilegt að telja plastbakka til að geyma púður á til endurhleðslu til íhluta skotvopna?

Það eru tvö ár síðan þessum lögum var breytt en það bólar ekki á neinni reglugerð. Þetta veldur miklum vandræðum hjá lögreglu og ekki síst á skotvopnanámskeiðum þar sem vopnalög og gamlar reglugerðir stangast á þegar verið er að kenna nýjum skotvopnaleyfishöfum. Það má t.d. ekki leyfa nýliðum án skotvopnaleyfis að prófa að skjóta skotum undir leiðsögn, það má t.d. alls staðar í Skandinavíu, svo eitt dæmi sé nefnt.

Síðan er það líka þannig, virðulegi forseti, að það hefur ekki verið samræmi í því hvernig eftirliti með þessu sé háttað. Reyndar er það þannig að það eru dæmi um það að eftirlitið, sem er sjálfsagt að hafa, sé framkvæmt án nokkurs fyrirvara, ekki með klukkutíma fyrirvara, ekki með stuttum fyrirvara heldur engum fyrirvara. Þar erum við að tala um að það er bara verið að framkvæma eftirlit hjá borgurum, það er ekki verið að tala um nein neyðartilfelli, það er ekki neitt almannaöryggi í hættu eða grunur um nokkuð óeðlilegt eða ólöglegt. Þetta er bara hefðbundið eftirlit hjá annars löghlýðnum borgurum. Það segir sig því sjálft að þetta er ekki í samræmi við meðalhóf. Ég vonast því til þess, virðulegur forseti, og veit að ég fæ góð svör frá hæstv. ráðherra og enn og aftur þakka ég fyrir forgangsröðun ráðherrans.