157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

skotvopnalög.

526. mál
[15:51]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni sömuleiðis fyrir fyrirspurnina. Í henni felst heilbrigt og gott aðhald af hálfu þingsins og þetta er góð fyrirspurn. Í byrjun vil ég vera á svipuðum slóðum og hv. þingmaður. Lög og reglur um skotvopn eru auðvitað gríðarlega mikilvæg sem og eftirlit með þeim og eins og hv. þingmaður nefndi þá þurfum við kannski ekki að hugsa það langt hverjar ástæður þess eru.

Fyrsta spurningin strax: Það er unnið að reglugerð í ráðuneytinu núna. Hún er býsna efnismikil og varðar fjölda atriða sem sum hver eru tæknilega flókin. Þegar þau liggja fyrir verða þau birt í samráðsgátt stjórnvalda og ég geri ráð fyrir því, út af því að efnið er í eðli sínu samfélagslegt og pólitískt, að við fáum umsagnir sem munu þroska þetta mál. Síðan verður unnið úr þeim eftir atvikum og jafnvel fundað með hagaðilum. Þetta var fyrsta spurningin og það er sem sagt unnið að reglugerð í ráðuneytinu.

Samkvæmt ársskýrslu ríkislögreglustjóra frá árinu 2024 voru vopnalagabrot það ár 506 talsins og þeim fjölgaði um 10% miðað við meðaltal áranna á undan. Þar af voru 76 mál tengd skotvopnum. Helstu verkefni sérsveitar ríkislögreglustjóra sama ár tengdust vopnaburði og voru vopnatengd verkefni um 7% fleiri en árið á undan. Þegar við skoðum 2021 og 2023 voru útköll tengd skotvopnum um 85–90 á ári, þetta eru býsna háar tölur. Í skýrslu þjóðaröryggisráðs frá 2021 segir frá því að hálfsjálfvirkum og sjálfvirkum skotvopnum hafi fjölgað undanfarin ár hér á landi. Frá 2012–2017 voru engin slík vopn flutt til landsins en frá 2018–2021 voru flutt inn um 1.400 slík vopn. Lagabreytingin sem forveri minn í embætti, hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, kynnti hér á þingi árið 2024 var m.a. til að stemma stigu við vaxandi fjölda hættulegra vopna hérlendis. Í þeim breytingum á skotvopnalögum sem komu fyrst fram í frumvarpi Guðrúnar Hafsteinsdóttur kemur fram í greinargerð, með leyfi forseta:

„Við vinnslu frumvarpsins hafa sömu forsendur verið hafðar að leiðarljósi og þegar lögin voru sett, þ.e. að vopn séu hættuleg tæki og að almennt beri að stuðla að því að þau séu ekki höfð við hönd nema í undantekningartilvikum. Samkvæmt lögum er meginreglan sú að öll vopn séu bönnuð nema þau séu sérstaklega leyfð með lögum.“

Þetta er mikilvægt að hafa í huga við alla reglusetningu. Hv. þingmaður nefnir sérstaklega 23. gr. vopnalaga sem var breytt í þessu frumvarpi forvera míns í embætti. Þar er m.a. kveðið á um þá skyldu eigenda skotvopna og tengdum búnaði að varðveita eigi þessa muni í sérútbúnum vopnaskáp. Þá er skylt að veita lögreglu aðgengi að slíku og lögreglu slíkt eftirlit sérstaklega heimilt án tilefnis, a.m.k. einu sinni á hverju leyfistímabili. Örugg geymsla þjónar þeim tilgangi að draga úr líkum á því að óviðkomandi geti stolið vopnum og minnkar líkur á því að börn eða ungmenni komist í vopnin. Þessi heimild byggist því á skýru lagaákvæði og byggist á skýru markmiði. Lögin voru á sínum tíma samin í miklu samstarfi við löggæsluna, voru samþykkt með öllum greiddum atkvæðum hér á Alþingi og rökstuðningurinn allur í málinu var að þetta væri nauðsynlegt almannaöryggi.

Hv. þingmaður spyr líka um innheimtu gjalda vegna íhluta skotvopna og hvort það samræmist meðalhófsreglu. Mín afstaða er sú að það geri gjaldtakan. Gjaldtaka vegna umsókna um heimild til innflutnings íhluta er t.d. um 6.500 kr. og ég sé ekki að það fari gegn meðalhófi.

Ég held að ég sé búin að fara yfir öll helstu atriðin í fyrirspurn þingmannsins. Ég er ekki þeirrar skoðunar að hér sé nokkuð sem fari í bága við stjórnarskrá. Ég lít ekki svo á að við séum hér rangstæð við meðalhóf. Það þarf auðvitað að vera jafnvægislist í því að fólk hafi frelsi í þeim tilvikum þar sem það hefur fengið heimild til að vera með vopn, að það sé einhver þolanleg umgjörð í kringum það og það er verið að vinna að reglugerð sem er byggð á þessari lagasetningu.