skotvopnalög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og það væri ágætt að fá að vita hvenær gert er ráð fyrir að reglugerðardrögin liggi fyrir. En af því að mér fannst vera ákveðinn tónn í annars góðu svari hæstv. ráðherra vil ég skýra af hverju ég kem að þessu máli með þessum hætti. Það er einfaldlega vegna þess að við viljum hafa — og það voru greidd atkvæði, þetta er frumvarp sem kom frá formanni Sjálfstæðisflokksins og það var full samstaða um frumvarpið — ströng lög og reglur þegar kemur að skotvopnum. Þau eru hættuleg og það er mjög mikilvægt að þau komist ekki í hendurnar á einhverjum sem á ekki að vera með þau og er ekki með leyfi og réttindi. En um það snýst málið ekki heldur snýst það um að þegar menn gera þetta þá í fyrsta lagi verða reglurnar að vera tilgreindar og skýrar. Ég nefndi hér t.d. varðandi skotvopnaleyfin. Ég nefndi líka hluti sem ég held að hafi örugglega ekki verið vilji löggjafans; að plastbakkar, sem eru náttúrlega jafn hættulegir og önnur plastbox, geti ekki verið ígildi vopna.
Það sem ég er bara að biðja um, virðulegi forseti, er að þetta sé unnið með þeim hætti. Sömuleiðis held ég að það sé fullur vilji og treysti því að alla vega allt ábyrgt fólk sem t.d. stundar veiðar og annað slíkt — sem menn eru búnir að gera hér frá landnámi og hafa gert í þeim löndum sem við berum okkur saman við þótt við gerum að vísu minna af því en aðrir — ég veit ekki annað en að það sé ríkur vilji til þess að menn fari eftir lögum og reglum. En það virðist hafa verið gengið þannig fram í þessu eftirliti að það sé ekki í neinu samræmi við efni máls. Hæstv. ráðherra talar um ólögleg vopn, hættuleg vopn. Öll vopn eru hættuleg en ég held að ég viti hvað hæstv. ráðherra er að fara. Það er gríðarlega mikilvægt (Forseti hringir.) að hafa eftirlit með því og það þarf að hafa eftirlit með þessu öllu saman. En þeir aðilar sem vilja standa sig vel gera þetta vel og það má ekki refsa þeim fyrir það og ganga þannig fram að það sé ekki í neinu samræmi við hefðbundið eðlilegt eftirlit. (Forseti hringir.) Það er bara það sem ég er að vekja athygli hæstv. ráðherra á og spyrja um, hvort það sé verið að skoða þetta út frá þessum forsendum. En aftur: Við viljum ströng lög og reglur þegar kemur að skotvopnum. Það er ekki um það deilt.