157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

skotvopnalög.

526. mál
[15:58]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég er sammála hv. þingmanni og ég átta mig á því að við erum sammála um það bæði tvö og ég held þingheimur allur, að markmiðin séu skýr. Við viljum öll skýr vopnalög í ljósi þess hvaða hagsmunir búa að baki en svo þarf að vera þetta jafnvægi sem þingmaðurinn nefnir. Þar held ég að við séum líka sammála. Það er viðurkennt sjónarmið að menn eru hér á landi að veiða, nota vopn í því samhengi og við eigum að bera virðingu fyrir því. Það geri ég sannarlega líka. Ég treysti mér ekki til að svara því afdráttarlaust hvenær reglugerðin er væntanleg en vinnan stendur yfir og þar get ég fullvissað þingmanninn um að horft verður til þess að við náum fram þessu jafnvægi um það. Við ætlum sannarlega ekki að gefa neinn afslátt af þessum öryggishagsmunum því við vitum að jafnvel vopn sem menn eiga í góðum og gildum tilgangi geta orðið hættuleg um leið og þau rata í rangar hendur. Þess vegna viljum við líka hafa uppi eftirlit en það er auðvitað alltaf markmið stjórnvalda að ná fram eðlilegu jafnvægi í því í samskiptum sínum við borgarana í landinu. Þá er ég, eins og hv. þingmaður, ekki síst að horfa til þess að menn eigi vopn í samhengi við áhugamál sín og veiðar þannig að það verður algerlega skýrt markmið í þessum efnum.