stefna í málefnum innflytjenda.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vek athygli á því að dómsmálaráðherra er hér í salnum og hefur staðið í ströngu frá því að hún tók við og er að taka á ýmsu í þessum málaflokki. Það var nú bara síðast verið að kynna hér Öruggara Ísland fyrir ekki svo löngu síðan, stefnu í málum er varða skipulagða brotastarfsemi sem ég veit að allir sem starfa í þessum málaflokki hafa verið afskaplega ánægðir með. Það er búið að fjölga lögreglufólki og setja aukna fjármuni til lögreglunnar. Það hefur verið og er verið að styrkja heimildir þegar kemur að lögreglunni. Við erum að vinna að ýmsum úrræðum þegar kemur að því að taka fyrir t.d. mansal, misnotkun á atvinnuleyfum og reyna að samræma úrvinnslu slíkra leyfa. Það er verið að afgreiða hér út úr nefnd, held ég bara á næstu dögum, brottfararúrræði. Það hefur bara heilmikið gerst, hv. þingmaður. Auðvitað hugnast engum að hlusta á þá sögu sem hér er flutt og það líður engum vel þegar svona atburðir eru raktir. En það breytir því ekki að við erum að gera ýmislegt til að taka á skipulagðri brotastarfsemi.
Það er alls ekki svo, hv. þingmaður, þrátt fyrir að við þurfum að hafa stjórn á okkar landamærum, þrátt fyrir að við þurfum að vera með virkt eftirlit, þrátt fyrir að vera með sanngjarnt kerfi sem er í senn mannúðlegt og skynsamlegt, að við getum fullyrt að allir sem hingað koma í leit að hæli séu að stunda skipulagða brotastarfsemi. Það er verið að taka á þessum málum og það er ýmislegt sem þurfti að gera. En það liggur alveg fyrir að dómsmálaráðherra og þessi ríkisstjórn eru vakin og sofin yfir skipulagðri glæpastarfsemi, ég tala nú ekki um í þeim tilvikum sem hér er verið að hafa eftir í pontu.