157. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2026.

stefna í málefnum innflytjenda.

[10:46]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Því miður minnti þetta svar meira á flokksbróður hæstv. forsætisráðherra Keir Starmer heldur en flokkssysturina Mette Frederiksen. Hér er málum drepið á dreif; sagt að það sé verið að stofna hópa og spekúlera í hlutunum. Svona verða svörin eftir tíu ár með sama stjórnarfari. Í Danmörku gerðu jafnaðarmenn sér þó grein fyrir því að ástandið væri orðið slíkt að það þyrfti alvöruaðgerðir, það þyrfti stefnubreytingu, það þyrfti ný lög, ný og harðari lög og enginn þar né hér hélt því fram að allir hælisleitendur væru glæpamenn. Svona fullyrðingar eru eingöngu til þess ætlaðar að drepa málum á dreif og koma í veg fyrir umræðu. En það liggur fyrir, frú forseti, að hér hefur komið til landsins töluverður fjöldi fólks sem hefði aldrei átt að fá að koma hingað, hvað þá að setjast hér að og beið ekki boðanna með að fara að níðast á samfélaginu sem tók á móti því. Við verðum sjálf að geta valið hverjum býðst að flytja til landsins og búa hér. (Forseti hringir.) Er ekki tímabært að vakna og bregðast við því ástandi sem blasir við og hefur reyndar gert um allnokkra hríð?