stefna í málefnum innflytjenda.
Frú forseti. Ég hef rætt þennan málaflokk margsinnis við flokkssystur mína, Mette Frederiksen, og geri mér alveg fyllilega grein fyrir því hvað er í gangi í Danmörku. Ég geri mér líka fulla grein fyrir því hvað er í gangi á Íslandi og ég átta mig fullkomlega á því hvað hæstv. dómsmálaráðherra er að gera, sem er að stórauka stjórn í þessum málaflokki. Það sést bara á öllum þeim fjölda mála sem hafa komið inn í þingið. Ég veit að það er óskaplega vinsælt að koma hér upp og láta eins og ekkert sé að gerast en það er einfaldlega ekki rétt. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður hafi einfaldlega ekki lesið þingmálaskrána eða fylgst með þeim málum sem eru í nefndum en það liggur fyrir að það er fjöldinn allur af úrræðum sem eru nú þegar komin inn í þingið, fjöldinn allur af úrræðum. Ég býst við að Miðflokkurinn muni greiða atkvæði með þeim, verði á grænu þegar við erum að taka til í þessum málaflokki. Það hefur meira gerst á þessum stutta tíma þessarar ríkisstjórnar upp á síðkastið en á mörgum árum hér. Höldum því til haga.