157. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2026.

rammaáætlun um endurreisn samfélagsins í Grindavík.

[10:57]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Mig fýsir að bera hér nokkrar spurningar undir hæstv. forsætisráðherra um stöðu mála vegna endurreisnar Grindavíkur. Fyrr í þessum mánuði var birt rammaáætlun Grindavíkurnefndarinnar. Áætlunin er ágæt svo langt sem hún nær en er þó þögul í mikilvægum atriðum, einkum og sér í lagi um tímalínu þeirra aðgerða sem ráðast þarf í, auk þess sem vinna við skilgreiningu á svokallaðri ásættanlegri áhættu hefur farið afar hægt af stað. Sem stendur er staðan í bænum sú að þar eru daglega unnin um 1.400 störf en stærstur hluti starfsmanna þarf að keyra til og frá vinnu nokkra vegalengd úr öðrum sveitarfélögum. Líf er í bænum á vinnutíma en minna á öðrum stundum. Ástæðan fyrir því er einföld: Fólk fær ekki húsnæði í bænum og hafa Grindvíkingar margir hverjir gengið bónleið til búðar hvað varðar fasteignafélagið Þórkötlu en fasteignafélagið ákvað nýverið að gera hlé á veitingu nýrra gistiheimilda í bænum, eitthvað sem er mikið bakslag og gríðarleg vonbrigði fyrir þá sem hugðust fá gistisamninga fyrir sumarið og máta sig við aðstæður og nýjan veruleika í Grindavík. Samtöl við Grindvíkinga og Járngerði, íbúasamtök Grindvíkinga, endurspegla þá upplifun bæjarbúa að verið sé að beita Þórkötlu til að svæfa málið í nefnd, ef svo má að orði komast, íbúar Grindavíkur séu í raun farþegar á þeirri vegferð að endurreisa bæinn.

Mig langar því, virðulegi forseti, að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvernig tímalína málsins lítur út og hvort ekki sé unnt að gefa viðhorfi og vilja Grindvíkinga meira vægi þegar fram í sækir.