rammaáætlun um endurreisn samfélagsins í Grindavík.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en ég hlýt auðvitað að velta fyrir mér hvort það sé þá ekki þannig að við ætlum að treysta Grindvíkingum fyrir örlögum sínum hvað þetta varðar. Alla vega upplifa Grindvíkingar að þeir séu ekki hafðir með í ráðum. Það verður ekki annað séð en að núverandi ríkisstjórn virðist hafa þá stefnu að hægja á endurreisninni í Grindavík í stað þess að hraða henni. Ég vil meina að í því felist mikið bakslag fyrir Grindvíkinga sem langar að flytja aftur heim.
Frú forseti. Staðan er þessi: Grindavík er opin. Þar er búið. Þar eru fjölskyldur og börn. Sveitarfélaginu ber að sinna grunnþjónustu og hefur því undirbúið skólahald næsta vetur. Það er búið að verja bæinn. Fyrri ríkisstjórn lét reisa varnargarða. Það er enginn í hættu innan bæjarmarka Grindavíkur. Það er búið að skanna hvern fermetra og búið að girða hættusvæðið af, búið að laga öll önnur svæði með því að fylla í sprungur. Vandinn er þessi: Fólk fær ekki íbúðarhúsnæði. Fasteignafélagið Þórkatla, sem er í 99% eigu ríkisins, vill ekki láta húsnæði af hendi til íbúa þannig að fólk getur ekki flutt heim.
Á að endurreisa samfélagið í Grindavík? (Forseti hringir.) Ef ekki, hvers vegna segir ráðherrann það þá ekki bara hreint út og lætur kaupa upp restina af húsnæðinu og atvinnustarfsemina og loka bænum? Raunveruleikinn er sá að endurreisn Grindavíkur er löngu hafin. (Forseti hringir.) Grindavík er öllum opin, atvinnulífið gengur vel og íbúar eru tilbúnir til að taka þátt og þyrstir í að komast aftur heim.