157. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2026.

rammaáætlun um endurreisn samfélagsins í Grindavík.

[11:03]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég geri mér grein fyrir því að endurreisnin er hafin og ég held að við séum öll í þessum sal sammála um að við viljum fara sem hraðast af stað. Hvernig við gerum það hins vegar skiptir máli. Akkúrat núna er verið að leggja lokahönd á ákveðin lagaleg álitaefni hjá Þórkötlu varðandi endurkaupaáætlun. Þau vilja gera þetta með skynsamlegum hætti og vilja vera með vaðið fyrir neðan sig. Þetta er stærsta ákvörðun sem hefur verið tekin í svona málum á Íslandi. Þetta á sér engin fordæmi, þau uppkaup sem áttu sér stað, og það er auðveldara sagt en gert að hefja það ferli. Það er ekki þannig að ríkisstjórnin eða Þórkatla sé að reyna að halda aftur af endurreisn. Þvert á móti er verið að reyna að gera þetta með réttum hætti, að við komumst rétt af stað þannig að við lendum ekki í óþarfaáföllum á leiðinni sem halda aftur af framtíðarendurreisn. Það eru allir samstiga hvað það varðar.

Ég geri mér grein fyrir því að það eru skiptar skoðanir í þessu máli, það eru tilfinningar í þessu máli, bæði í þessum þingsal en ekki síst auðvitað meðal Grindvíkinga allra og þar eru skiptar skoðanir. En ríkisstjórnin er sannarlega á þeim stað (Forseti hringir.) að hafa trú á Grindavík þó að tímalínan sé ekki nú þegar meitluð í stein.