mansal á Íslandi.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og vil byrja á að nefna að í morgun kynnti ég fyrstu landsáætlun Íslands gegn kynbundnu ofbeldi. Hún inniheldur 25 aðgerðir sem koma til framkvæmda á árunum 2026–2030. Áætlunin heitir Rétturinn til öryggis, sem mér finnst kjarna ágætlega við hvaða vandamál er að eiga. Það sem kom fram í sjónvarpsþættinum Kveik kom mér því miður ekkert sérstaklega á óvart en ég vil líka spyrja þingheim: Viljum við að Ísland og Reykjavík séu þekkt fyrir það að hér séu starfandi rauð hverfi? Viljum við að Ísland og Reykjavík séu stór á landakorti vændisborga? Ég segi nei.
Þessi ríkisstjórn hefur frá fyrsta degi tekið stór skref í aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi. Vinna við nýja aðgerðaáætlun gegn mansali er langt komin í dómsmálaráðuneytinu og stefnt er að því að birta hana í samráðsgátt í sumar. Fyrr á árinu kynnti ég stefnuna Öruggara Ísland með aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi. Ég vil líka nefna þetta: Þar sem vændi þrífst, þar þrífst líka mansal. Þessi tengsl eru alltaf og ævinlega fyrir hendi. Það er ekki þannig að allir eða allar þær konur sem eru í mansali séu þolendur mansals en tengslin eru mjög sterk. Þess vegna verður ríkisstjórn sem ætlar að stíga markviss skref gegn skipulagðri brotastarfsemi líka að horfa á vændismarkaðinn. Við vitum líka hver tengslin eru, eins og sást ágætlega í þessum þætti, hvað var verið að selja í næsta herbergi við herbergi 214. Þannig að mér finnst það vera stóra málið í þessu.
Ég kem í síðara svari að spurningu þingmannsins um lagalegan veruleika málsins en ég er að skoða og hyggst leggja fram í haust breytingar á vændislagaákvæðinu.