mansal á Íslandi.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og skrefin. Fyrir mína parta segi ég líka nei, ég ætla ekki að una við óbreytt ástand og ég vona svo sannarlega að okkur lánist þverpólitískt að ná sátt um að við óbreytt ástand verður ekki unað. Ísland er hvað sem öðru líður orðið að ákjósanlegum áfangastað fyrir rekstur þessara glæpahringja með útgerð á fólki. Það er staðan. Ég vil þó benda á augljósa staðreynd málsins. Þessi starfsemi myndi ekki þrífast hér á landi ef engir væru kaupendurnir eða réttara sagt gerendurnir. Á það hefur verið bent að nafnleynd ríkir í mansalsmálum rétt eins og í öðrum kynferðisbrotamálum. Nafnleynd við birtingu dóma er fyrst og fremst til staðar til þess að vernda rétt þolenda en á það jafn vel við í þessum málaflokki, að mati hæstv. ráðherra? Er hægt að rökstyðja þessa nafnleynd með rétt brotaþola í huga í mansali? (Forseti hringir.) Er rétt að taka stöðumat á þessu máli út frá hagsmunum samfélagsins alls og þeirra þolenda sem hér eru undir?