þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki. Með frumvarpinu er kveðið á um setningu nýrra laga um þjónustuveitendur fyrir hópfjármögnun fyrir fyrirtæki. Með þeim er innleitt í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 frá 7. október 2020 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 og tilskipun (ESB) 2019/1937. Notast hefur verið við skammstöfunina ECSP sem heiti á þessari reglugerð.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gest en engar umsagnir bárust.
Samkvæmt ECSP er þjónustuveitandi hópfjármögnunar lögaðili sem veitir hópfjármögnunarþjónustu, þ.e. leiðir saman fjárfesta og verkefniseiganda sem leitast eftir því að fjármagna atvinnurekstur í gegnum hópfjármögnunarvettvang. Á Íslandi er ekki að finna regluverk um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki. Með innleiðingu ECSP verður starfsemin því starfsleyfisskyld með tilheyrandi kröfum sem frumvarpið kveður á um.
Meiri hlutinn telur jákvætt að settur sé skýr rammi um hópfjármögnunarviðskipti. Með þessu móti er stefnt að því að auðvelda umfangsmikla hópfjármögnunarþjónustu á innri markaði Evrópusambandsins og auka þannig aðgang frumkvöðla, sprotafyrirtækja, fyrirtækja í stækkunarferli og lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármagni.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Arna Lára Jónsdóttir, Ragna Sigurðardóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Forseti. Ég hef lokið máli mínu.