157. löggjafarþing — 106. fundur,  30. apr. 2026.

opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.

320. mál
[16:20]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun. Með frumvarpinu eru lögð fram ný heildarlög um opinbera samkeppnissjóði á sviði nýsköpunar ásamt því að hlutverk Rannís í stuðningsumhverfi þekkingarsamfélagsins er skilgreint. Markmiðið er að einfalda sjóðaumhverfi vísinda og nýsköpunar, fækka sjóðum, minnka umsýslukostnað og samræma þannig stjórnsýslu eins og hægt er.

Samkeppnissjóðir á sviði vísinda og nýsköpunar hafa í tvo áratugi byggt á tvennum mismunandi lögum, sjö sjóðir með mismunandi reglur, mismunandi stjórnir og mismunandi verklag. Þetta hefur leitt til þess að sjóðaumhverfið er dreifðara en þörf krefur. Umsýslukostnaður er hærri en nauðsyn ber og yfirsýn stjórnvalda yfir heildina minni en æskilegt er. Umsækjendur, hvort sem um er að ræða vísindafólk, sprotafyrirtæki eða háskólanema, hafa þurft að átta sig á flóknu umhverfi, flóknu kerfi og mörgum sjóðum þar sem skörun er á markmiðum og áherslum. Því er með frumvarpinu lagt til að fjórir sjóðir taki við hlutverki sjö eldri sjóða og verða hinir nýju sjóðir Rannsóknasjóður, Nýsköpunarsjóður, Áherslusjóður og Innviðasjóður. Þessir fjórir sjóðir hafa skýr og aðgreind hlutverk. Rannsóknarsjóður styður við grunnrannsóknir og nýliðun. Nýsköpunarsjóður stuðlar að nýsköpun frumkvöðla og fyrirtækja. Áherslusjóður beinir kröftum að lausn samfélagslegra áskorana og Innviðasjóður byggir upp þá rannsókna- og tækniinnviði sem liggja til grundvallar í öllu þessu starfi. Með þessu er lagður grunnur að öflugra, skilvirkara og gagnsærra stuðningsumhverfi sem getur raunverulega styrkt samkeppnishæfi Íslands á alþjóðavettvangi.

Virðulegur forseti. Í umfjöllun nefndarinnar fékk nefndin til sín gesti og fjallaði ítarlega um málið. Við hittum breiðan hóp fagaðila frá samtökum sveitarfélaga, háskólum, þekkingar- og nýsköpunarsetrum, Byggðastofnun, Rannís, Samtökum atvinnulífsins og fleirum. Það bárust 20 umsagnir auk minnisblaða frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega að umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir gagnvart frumvarpinu og lýstu yfir stuðningi við meginmarkmið þess. Sérstaklega var tekið undir markmið um einföldun umsýslu, aukna yfirsýn og skilvirkni, samræmingu ferla og skýrari þjónustuleiðir fyrir umsækjendur sem stuðlar líka að auknum samfélagslegum áhrifum vísindastarfs.

Landspítalinn tók sérstaklega undir markmiðið um alþjóðlega samkeppnishæft umhverfi rannsókna og nýsköpunar og Rannís taldi að endurskoðunin endurspeglaði betur þá breidd sem felst í starfsemi stofnunarinnar.

Meiri hlutinn tekur undir mat umsagnaraðila og telur að heildarendurskoðun laganna sé mikilvæg og tímabær til að ná fram þeim markmiðum sem stefnt er að, svo sem að einfalda sjóðaumhverfið fyrir umsækjendur og bæta yfirsýn stjórnvalda yfir styrkveitingar til að opinbert fé nýtist betur fyrir íslenskt samfélag.

Það er jafnframt nýmæli og mikilvægt skref að frumvarpið gerir kröfu um reglubundið árangurs- og áhrifamat á sjóðum til að tryggja að opinbert fé skili þeim árangri sem ætlað er. Meiri hlutinn telur þannig einnig vera til bóta að hlutverk Rannís sé skilgreint á breiðari grundvelli svo það endurspegli betur þá starfsemi sem þar fer fram. Rannís hefur þróast úr stofnun sem sá um fjóra innlenda sjóði í þjónustumiðstöð sem fer með umsjón og umsýslu með 26 sjóðum og sex samstarfsáætlunum Evrópusambandsins auk norrænna áætlana. Sú þróun á að endurspeglast í lögunum.

Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur þó til breytingar á frumvarpinu með tilliti til sjónarmiða umsagnaraðila og í samræmi við minnisblað sem barst nefndinni frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar Lóu – verkefnastyrki, með tilliti til byggðasjónarmiða. Í umsögnum samtaka sveitarfélaga, þekkingar- og nýsköpunarsetra og Byggðastofnunar var bent á að hætta væri á því að stuðningur við nýsköpun á landsbyggðinni glataðist við sameiningu sjóða. Þessi sjónarmið eiga erindi. Nýsköpun á landsbyggðinni fer ekki fram á sömu forsendum og á höfuðborgarsvæðinu. Lóa hefur gegnt mikilvægu hlutverki í að styðja við frumkvöðlastarfsemi á forsendum svæðanna. Ráðuneytið lagðist ekki gegn þessari leið og hyggst gera sérstakt áhrifamat á styrkveitingum Lóu til framtíðar. Meiri hlutinn leggur því til að Lóa – verkefnastyrkir haldi áfram sem sérstakur sjóður. Fjármögnun Lóu hefur takmörkuð áhrif á markmið frumvarpsins um hagræði þar sem allur umsýslukostnaður greiðist úr sjóðunum sjálfum en tryggir betur sérstöðu landsbyggðarinnar.

Í öðru lagi er lögð til breyting á skipun fulltrúa í stjórn Nýsköpunarsjóðs skv. 10. gr. Samtök atvinnulífsins bentu á að þau hafi tilnefnt tvo stjórnarmenn í stjórn Tækniþróunarsjóðs samkvæmt gildandi lögum og myndu missa þann aðgang að stjórn með því frumvarpi sem lá fyrir. Meiri hlutinn telur eðlilegt að samtökin geti áfram tilnefnt einn fulltrúa enda er samspil nýsköpunarstarfs og atvinnulífs lykillinn að því að góðar hugmyndir skili ávinningi. Meiri hlutinn leggur því til að Samtök atvinnulífsins tilnefni einn fulltrúa í stað Nýsköpunarsjóðsins Kríu, en rétt er að nefna að forverar Kríu áttu ekki fulltrúa í stjórn Tækniþróunarsjóðs. Stjórnin verður þannig áfram skipuð fimm manns.

Þá eru lagðar til minni háttar málfarsbreytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar og vísað er að öðru leyti til umfjöllunar í áliti meiri hlutans.

Frú forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Ég tel að þetta frumvarp marki mikilvæg þáttaskil í því hvernig við styðjum við vísindi og nýsköpun hér á landi. Með einfaldara og skilvirkara sjóðaumhverfi, skýrari hlutverkaskiptingu og lögfestri kröfu um áhrifamat erum við að búa til betri grunn fyrir íslenskt þekkingarsamfélag. Þetta snýst um að bestu hugmyndirnar fái brautargengi, að nýliðun eigi sér stað í rannsóknum og frumkvöðlastarfi og að opinbert fé skili sem mestum árangri.

Undir þetta álit sem ég hef kynnt hér rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Grímur Grímsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sandra Sigurðardóttir.