157. löggjafarþing — 106. fundur,  30. apr. 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[16:33]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Grímur Grímsson) (V):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fullnustu refsinga. Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um fullnustu refsinga er varðar reynslulausn og afplánun erlendra ríkisborgara sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að lokinni afplánun, með það að markmiði að stytta boðunarlista og draga úr líkum þess að dæmd refsing fyrnist.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og barst ein umsögn. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega: Meiri hlutinn bendir á að í greinargerð með frumvarpinu er fjallað ítarlega um tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar. Fjölgun erlendra ríkisborgara í fangelsum landsins, sem hafa lítil eða engin tengsl við landið, hefur skapað áskoranir fyrir fullnustukerfið, bæði hvað varðar þjónustu og öryggi. Afleiðingarnar eru meðal annars álag á afplánunarrými, lengri boðunarlistar og aukin hætta á að refsingar fyrnist.

Að því virtu varðar meginefni frumvarpsins tvo þætti sem tengjast innbyrðis. Annars vegar er lögð til tímabundin heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn í stað helmings líkt og gildandi reglur kveða á um. Hins vegar fjallar frumvarpið um skilyrði fyrir því að leyfa sama hópi að afplána refsingu utan fangelsis, þ.e. undir rafrænu eftirliti eða á sérstakri stofnun eða heimili. Því er lagt til að eftirleiðis verði það að skilyrði fyrir því að geta afplánað refsingu utan fangelsis að ekki liggi fyrir ákvörðun um að vísa eigi viðkomandi úr landi að afplánun lokinni.

Nefndinni barst umsögn frá Afstöðu – réttindafélagi þar sem tekið var undir nauðsyn frumvarpsins. Fram komu sjónarmið um tilgang afplánunarúrræða utan fangelsis þar sem félagið taldi eðlilegt að einstaklingar, sem brottvísa á úr landi að lokinni afplánun njóti ekki sömu afplánunarúrræða utan fangelsis og þeir sem snúa aftur til samfélagsins. Þá komu fram jafnræðissjónarmið þar sem lögð var áhersla á mikilvægi þess að sambærileg mál hljóti sambærilega meðferð. Tekur meiri hlutinn undir með þeim sjónarmiðum sem fram koma í umsögn Afstöðu.

Meiri hlutinn telur mikilvægt að frumvarpið nái fram að ganga til að bregðast tímabundið við áskorunum fullnustukerfisins. Hvað varðar skilyrði þess að leyfa erlendum föngum, sem vísa á úr landi að lokinni afplánun, að afplána refsingu utan fangelsis, áréttar meiri hlutinn að afplánun utan fangelsis byggist á sjónarmiðum um endurhæfingu og aðlögun að samfélaginu að nýju, t.d. með ástundun náms eða vinnu. Ljóst er að slík sjónarmið eiga síður við um erlenda ríkisborgara með lítil eða engin tengsl við landið sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni. Meiri hlutinn undirstrikar einnig að breytingin er í samræmi við framkvæmd á Norðurlöndunum um skilyrði afplánunar utan fangelsis.

Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi jafnræðissjónarmiða. Í því samhengi má benda á það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu um þá tvo mismunandi hópa sem frumvarpið varðar; annars vegar hóp sem tilheyrir og mun snúa aftur í íslenskt samfélag og hins vegar hóp einstaklinga sem leyfist ekki dvöl í landinu. Mismunandi reglur gilda um þessa tvo hópa en meiri hlutinn undirstrikar að innbyrðis hljóti þeir sambærilega meðferð í samræmi við stöðu þeirra.

Hvað varðar þá breytingu frumvarpsins um tímabundna heimild til að veita erlendum föngum, sem sæta brottvísun, reynslulausn fyrr, telur meiri hlutinn brýnt að mæta þeim áskorunum sem blasa við í fullnustukerfinu vegna fjölbreytilegs fangahóps. Nauðsynlegt er að losa afplánunarrými, stytta boðunarlista og auka þjónustu við þá sem afplána í fangelsum eða öðrum úrræðum með það að markmiði að stuðla að aðlögun og endurkomu í samfélagið að nýju. Þá ætti breytingin ekki að fela í sér hvata fyrir erlenda ríkisborgara til að fremja afbrot á Íslandi en brottvísun erlendra fanga úr landi fylgir alltaf endurkomubann til landsins og á Schengen-svæðið, eigi viðkomandi ekki rétt til búsetu í öðru Schengen-ríki. Hefur endurkomubann því ákveðinn fælingarmátt.

Meiri hlutinn telur rétt að leggja áherslu á að sú breyting sem lögð er til í frumvarpinu er eingöngu tímabundin lausn. Undirstrikar meiri hlutinn því nauðsyn þess að koma á varanlegum úrbótum á fullnustukerfinu og beinir því til dómsmálaráðherra að halda áfram að skoða frekari lausnir hvað það varðar í þágu samfélagsins í heild.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt.

Undir álit meiri hluta allsherjar- menntamálanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Sandra Sigurðardóttir og Þorsteinn B Sæmundsson.

Frú forseti. Staða fullnustamála hefur tíðum verið til umfjöllunar hvort tveggja í okkar samfélagi og hér á hv. Alþingi en dómþolum sem bíða boðunar í afplánun refsingar hefur fjölgað síðastliðin ár. Fjölgað hefur á svokölluðum boðunarlista Fangelsismálastofnunar jafnt og þétt frá árunum í kringum aldamót. Fæstir voru á listanum árið 1998, 33 einstaklingar, en í lok árs 2025 voru 743 einstaklingar á þessum lista. Það hafa auðvitað orðið breytingar á milli ára en hallatalan hefur farið hækkandi upp til hægri nokkuð bratt. Rétt er að taka fram í þessu sambandi að töluverð aukning hefur orðið á sama tíma hvað varðar heildarrefsitíma. Þannig var heildarrefsitími árið 1998 192 ár en 549 ár 2025. Ekki liggja fyrir upplýsingar um þróun í fjölda afplánunarrýma á sama tímabili en ljóst er að þeim hefur ekki fjölgað í samræmi við fjölgun þjóðarinnar eða þróun í heildarrefsitíma sem Fangelsismálastofnun fær til fullnustu á hverju ári.

Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað í íslenskum fangelsum undanfarin ár en samkvæmt greinargerð með frumvarpi því sem við hér ræðum voru 83% þeirra einstaklinga sem sættu gæsluvarðhaldi á síðastliðnu ári með erlent ríkisfang, 70% árið á undan og 60% á árinu 2023. Ber að geta þess að samkvæmt greinargerð með frumvarpi þessu eru í fyrrnefndum tölum þeir meðtaldir sem sættu gæsluvarðhaldi vegna fyrirhugaðs brottflutnings úr landi en voru ekki grunaðir um refsiverða háttsemi. Ef horft er til upplýsinga í greinargerð með frumvarpinu um hlutfall einstaklinga með erlent ríkisfang sem afplánuðu refsingu eða sættu gæsluvarðhaldi í lok janúar síðastliðinn má sjá að þeir voru 54%, þannig að hlutfall erlendra fanga í afplánun er lægra en hlutfall þeirra sem sæta gæsluvarðhaldi.

Frumvarpinu er ætlað að skapa aðstæður svo hægt verði að fjölga boðunum af listanum og til þess er, eins og áður er fram komið, lagt til annars vegar að heimilt verði að veita erlendum föngum reynslulausn að loknum einum þriðja hluta refsitímans, enda liggi fyrir ákvörðun um að vísa eigi viðkomandi úr landi að lokinni afplánun. Hins vegar er lagt til að eftirleiðis verði það skilyrði fyrir því að geta afplánað refsingu utan fangelsis á Íslandi að ekki liggi fyrir ákvörðun um að brottvísa eigi dómþola að afplánun lokinni. Afplánun utan fangelsis verður því eingöngu beitt ef til stendur að einstaklingur snúi aftur út í samfélagið. Með þessum breytingum mun erlendum ríkisborgurum í fangelsum landsins, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, fækka og myndast þá rými til að boða til afplánunar af boðunarlista Fangelsismálastofnunar, en samkvæmt greinargerð með frumvarpinu hefur mikil fjölgun erlendra ríkisborgara í fangelsum landsins leitt til þess að boðunarlistinn samanstendur nú mikið til af íslenskum ríkisborgurum sem framið hafa brot sem ekki teljast svo alvarleg að leitt hafi til þess að viðkomandi hafi verið úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi.

Frú forseti. Að lokum vil ég aftur leggja áherslu á að sú breyting sem lögð er til í frumvarpinu er eingöngu tímabundin lausn. Það er nauðsynlegt að koma á varanlegum úrbótum á fullnustukerfinu en fyrirhuguð bygging nýs fangelsis að Stóra-Hrauni er hluti þeirra úrbóta.

Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.