157. löggjafarþing — 106. fundur,  30. apr. 2026.

náttúruvernd, Vatnajökulsþjóðgarður og úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

581. mál
[17:54]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir framsöguna á nefndarálitinu sem við í minni hlutanum erum ekki á en ég ætla að leyfa mér að segja að við styðjum að mestu leyti. Við fengum þetta mál til umfjöllunar á 156. þingi og erum því orðin nokkuð vön í þessu máli. Ég vil meina að þær breytingar sem gerðar eru á málinu séu allar til bóta og að málið hafi skýrst heilmikið frá því að það kom fram á 156. þingi.

Ég ætla svo sem ekkert að bæta neitt sérstaklega við nefndarálitið. Það er í sjálfu sér bara mjög skýrt og ég sé ekki ástæðu til að lengja þennan fund með því að fara yfir þá þætti aftur. Ég ætla hins vegar að mæla hér fyrir breytingartillögu frá hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Breytingartillagan er á 1. gr. frumvarpsins og hljóðar svo:

„Í stað orðsins „tveir“ í 2. málsl. 1. gr. komi: fjórir.“

Þetta er sem sagt 1. gr. í breytingum á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013. Greinin hljómar þá svo: Ráðherra skal stofna svæðisstjórn sem hefur umsjón með náttúruvernd á því svæði sem friðlýst hefur verið sem þjóðgarður. Í svæðisstjórn skulu að lágmarki sitja fjórir fulltrúar í stað tveggja áður.

Ástæðan fyrir þessu er sú að með þessari breytingu er verið að tryggja að fulltrúar heimamanna séu í meiri hluta í stjórn. Það er partur af þeirri sýn að hafa valdið heima í héraði. Þetta hefur stundum verið þannig að það hafa verið deilur um þjóðgarða og við viljum meina að það muni hjálpa til að hafa þá heimamenn í meiri hluta í stjórn. Það er tilgangurinn með þessari breytingartillögu.

Að öðru leyti vil ég þakka kærlega fyrir samstarfið í nefndinni sem var gott og ég vonast til að þetta mál verði afgreitt á þessu þingi með þessari breytingartillögu.