157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

Störf þingsins.

[10:31]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Forseti. Allt of margir sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu þekkja það vel að veikindi þýða ekki bara áhyggjur af heilsunni heldur líka langar ferðir, kostnað, skipulag og fjarveru frá heimili og fjölskyldu. Fyrir suma verður meðferðin sjálf að aukabyrði sem leggst ofan á allt hitt. Fyrir 19 árum var ég einmitt ungmenni í slíkri stöðu; þá flaug ég á eigin kostnað til Reykjavíkur tvisvar í mánuði til að fara til sálfræðings og geðlæknis, mjög veik af áfallastreituröskun. Aðgengi að þjónustu var ekki gott þá og hefur því miður ekki skánað mikið. Í dag heyri ég reglulega í áhyggjufullum foreldrum sem fljúga með börnin sín, jafnvel vikulega, til að sækja úrræði hjá BUGL eða hjá sérfræðilæknum sem ekki veita þjónustu heima. Auðvitað verður ekki öll þjónusta til staðar alls staðar en það má heldur ekki vera sjálfgefið að fólk flytji sig endalaust til þjónustunnar á meðan kerfið hreyfist ekki tommu.

Forseti. Kannski þarf að hugsa þetta öðruvísi. Hvort ætli sé kostnaðarsamara þegar á hólminn er komið að greiða flug fyrir tugi eða jafnvel hundruð sjúklinga eða hreinlega senda sérfræðingana á svæðið.

Virðulegi forseti. Jöfn tækifæri óháð búsetu eru ekki bara falleg orð í stefnuskjölum, það birtist í raunverulegri reynslu fólks. Í því hvort foreldri þurfi að taka sér frí frá vinnu til að ferðast milli landshluta vegna viðtals sem hefði getað farið fram nær heimili. Í því hvort fólk upplifi að það skipti jafn miklu máli, sama hvar á landinu það býr. Fólk á landsbyggðinni á ekki að standa frammi fyrir því vali að velja milli búsetu eða þjónustu. Við getum gert betur en þetta.